AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Page 19
að útiiti, efnisvali, litum og tæknilegum lausnum og
vera síðan bygginganefnd til stuðnings við umfjöllun
hennar um klæðningaróskir. Vonandi er einnig að
rannsóknaverkefni sem er í gangi með veglegum
stuðningi Rannsóknaráðs ríkisins skili af sér góðum
lausnum og ráðleggingum.
Það er oft hörmulegt að sjá klæðningar sem runnu
hugsunarlaust af stað og síðan lendir allt í vitleysu
einhvers staðar í verkinu og eina björgunin er kíttis-
túpan eins og myndir sýna hér síðar.
ALGENGIR TÆKNILEGIR GALLAR í LOFTRÆSTUM
KLÆÐNINGUM
Það má því miður segja að við höfum upplifað galla
I öllum þáttum klæðninga, allt frá festingum undir-
grindar upp í ystu plötur. Algengustu göllum verður
lýst hér á eftir og stundum rakið hvernig bregðast
skuli við þeim. Mjög algengur galli er það hins vegar
að mati höfundar að oft er verið að klæða steypu
sem ósannað er að breytist svo til hins betra við
klæðninguna að hún muni ekki halda áfram að
skemmast. Þá er ekki óalgengt að klæðning á ónýtri
eða illa skemmdri steypu endar vel fyrir ofan jörð og
er steypan þá ekki varin fyrir veðrun neðst, en þar
væri t.d. hægt að halda áfram niður með óloftræstri
klæðningu. Hugsa þarf klæðningarmálin til enda.
Og algengasti gallinn í klæðningum er einfaldlega
sá að það gleymdist að hugsa áður en lagt var af
stað.
FESTINGAR
Allt of algengt er að notaðir séu einfaldir skotnaglar.
Klæðningar titra gjarnan í vindi og slíkar festingar
losna. Þá eru festingar gjarnan undirhannaðar, eink-
um við kanta og horn. Við höfum séð klæðningar á
heilu húshliðunum flettast af. Þetta er einnig ótrúlega
algengt við festingar ystu klæðningarinnar þar sem
fjarlægðir milli nagla eru miðaðar við tillögur framleið-
anda sem kannski er að framleiða klæðningar fyrir
ferfalt minna vindálag. Þá hafa oft verið notaðar fest-
ingar sem ekki hafa til að bera nægilega ryðvörn og
ryðga því í sundur með tímanum.
Tillaga: Nota eingöngu festingar sem eru prófaðar
fyrir titrandi álag. Reikna festingar fyrir vindálag en
nota ekki erlendar upplýsingar um fjarlægðir. Nota
a.m.k. heitgalvanhúðaðar festingar eða ryðfríar en
þar þarf vissa aðgát í samspili efna svo ekki komi
fram ryðmyndun í klæðningarefninu.
GRIND OG UNDIRBYGGING
Við höfum yfirleitt ekki talið algera nauðsyn á því að
gagnfúaverja grindarefni úr timbri í innri grindinni ef
nægilega vel er hugsað fyrir loftun grindarinnar.
Æskilegt er að halda grindinni örlítið frá vegg og það
verður næstum því nauðsyn ef innri grindin er lárétt.
Við höfum gjarnan beitt tvöföldu krossuðu lektukerfi
til að tryggja loftun og þá er nauðsynlegt að huga
vel að styrk loftunargrindarinnar þar sem hún þarf
að flytja krafta frá klæðningunni inn í innri grindina
sem oftast hefur nægan styrk. Of lítið er gert að því
að nota sérhannaðar málmgrindur undir málmklæðn-
ingar. Þá þarf að huga að því að ekki sé haft svo
langt á milli stoða í grindinni að klæðningin verpist.
Hér kemur líka til visst samspil við klæðningarefnið.
EINANGRUN
Það er sjálfsagt auðvelt að sýna fram á að ekki sé
alltaf hagkvæmt að einangra hús í leiðinni þegar klætt
er. Við mælum hins vegar eindregið með því. (
heitum útveggjum veldur þetta því að steypan verður
heitari og þornar niður fyrir skemmdamörk. Þetta
getur til dæmis komið í veg fyrir það að klórmengun
valdi ryðskemmdum í bendingu. í köldum veggjum
fækkar þetta frost-þíðusveiflunum. Hins vegar er að
mati höfundar nokkur vafi á að veruleg útþornun verði
í slíkum klæddum veggjum og það er aðaláhyggju-
efni okkar varðandi klæðningu svala og svalaveggja
ef frostskemmdir eru þegar komnar fram.
Eingöngu ætti að nota óbrennanlega einangrun.
VINDVÖRN (EÐA VATNSVÖRN)
Flestir álíta að hlutverk svokallaðrar vindvarnar sem
áður fyrr var oftast pappi sé eingöngu það að varna
því að það blási um einangrunina eða inn í húsin ef
um timburvegg er að ræða. Því hefur oft verið breytt
um efni með þennan eina skilning í huga. Raunar
hafa tilraunir sýnt það að í timburvegg hindrar vind-
vörnin það engan veginn að það blási inn í húsin.
það hlutverk uppfyllir innri rakavörnin miklu betur.
Vindvörnin hefur hins vegar annað og mjög mikilvægt
hlutverk. Það verður alltaf að reikna með því að vatn
komist á bak við ystu klæðninguna. Þetta vatn á að
renna niður og aftur út. Til þess þarf lag á bak við
klæðninguna sem getur leitt þetta vatn niður og
myndað þá hina frægu tveggja þrepa lausn sem
reynst hefur vel í tilfellum sem þessum. Þetta er að
okkar mati eitt aðalhlutverk „vindvarnarinnar" sem
kannski á mestan þátt í góðri hegðun hreinna
17