AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Síða 35
m
O
ISLENSKT MURKERFI
O
C
o
2
C
Z
ö
(/)
ui
O
z
Iþessari grein er fjailaö stuttlega um íslenskt
múrkerfi út frá sjónarmiði arkitekts. Vikið er að
sögulegri þróun byggingarefna í nokkrum orð-
um. Þá er stiklað á stóru varðandi einangrun
steinsteyptra húsa að utan með íslenskt múrkerfi sem
aðalumfjöllun.
HEFÐIN
íslensk byggingarhefð á sér ekki langa sögu í saman-
burði við aðrar þjóðir.
Ekki er ýkjalangt síðan byggt var að mestu úr torfi
og grjóti, náttúrlegum byggingarefnum sem voru
meginuppistaðan í íslenska torfbænum. Um og eftir
aldamótin hófst nýtt tímabil. Þá voru byggð hús úr
timbri og bárujárni, sem mörg hver standa enn í dag.
Báða þessa byggingarmáta má kalla séríslenska.
Á fyrri hluta þessarar aldar hófst síðan íslensk bygg-
ingarlist í anda steinsteypunnar. Þessi byggingarað-
ferð úr steinsteypu þróaðist skjótt og hefur verið
allsráðandi fram á okkar tíma. Langflestar þeirra
bygginga sem byggðar hafa verið úr steinsteypu eru
einangraðar að innan og steypan sjálf meðhöndluð
að utan á ýmsa vegu, bæði tii þess að verja hana og
einnig vegna áferðar og útlits. Arkitektar hafa mótað
steinsteypuna í hús af mikilli list og hafa þróað
séríslenskan arkitektúr úr þessu efni.
Ýmis vandamál hafa komið upp samfara þessari
byggingaraðferð. Má þar nefna lélega einangrun
útveggja, en mestur er þó viðhaldsvandinn. Hann
er til staðar í byggingum hvort sem veggir eru
múrhúðaðir eða þar sem um sjónsteypu ræðir.
Steinsteypan hentar vel sem burðarvirki og sem
mótandi efni í form húsa. Mikill vandi hefur hins
vegar skapast vegna veðrunar yfirborðsins,
sprungumyndunar og einnig vegna alkalívirkni
sem hefur slæm áhrif á steypuna. þessi vandi
hefur leitt til þess að nýjar hugmyndir hafa þróast
varðandi uppbyggingu steinsteyptra veggja,
bæði hvað nýbyggingar og viðhald eldri húsa
varðar.
NÝIR VALKOSTIR
Á síðari árum hafa þessar hugmyndir þróast hjá
þeim sem fyrir byggingum standa. Markmiðið hefur
verið að nýta betur eiginleika steinsteypu sem aðal- ^
byggingarefnis í húsum, auka einangrunargildi og h
hlífa yfirborði steypunnar meira en gert hefur verið 7;
hingaðtil. ~1
Arkitektar hafa, ásamt fleirum, riðið á vaðið varðandi
nýja möguleika á frágangi útveggja. Þeir eru að ein-
angra steypta vegginn að utan og klæða hann með
veðurhlíf.
Þessi byggingaraðferð hefur talsverðan orkusparnað
í för með sér, gefur kost á efnisminna burðarvirki í
veggjum um leið og hún veitir möguleika á fjölbreyttri
yfirborðsmeðhöndlun veggjarins.Efni veðurhlífarinnar
getur verið margs konar. Það geturt.d. verið úr slétt-
um gerviefnaplötum, sléttum steinflísum, sléttum eða
báruðum málmplötum og jafnvel timbri. Einnig hefur
ýmiss konar múrhúð rutt sér til rúms, bæði akrílmúr-
húð og trefjastyrkt sementsblönduð múrhúð.
Mestu máli skiptir að velja það efni til klæðningar yfir
einangrun.sem hentar viðkomandi byggingu. Klæðn-
ingarefnin eru gædd mismunandi eiginleikum og þarf
að meta notkun þeirra í Ijósi heildarlausnar viðkom-
andi byggingar.
Ýmis atriði þarf að meta út frá sjónarmiði byggingar-
listar þegar valin er sú aðferð að einangra og klæða