AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Blaðsíða 49
og torg á vit hins óvænta.Ráðandi eru tilfinningar og
óvissa um hið þekkta og hið óþekkta sem jafnframt
eru hluti af þeim hugmyndum sem Rossi hafði í huga
frá upphafi verkefnisins.
í öðru úthverfi Mílanóborgar horfði öðruvísi við á
seinni hluta fjórða áratugarins og fyrri hluta þess
fimmta. Hverfið kallast QT8 og var tilraunaverkefni
8. sýningarTriennale í Mílanó. Gerðar voru athuganir
á hinum ýmsu gerðum íbúða og skipulags þeirra
innbyrðis sem og hvernig þær tengdust hver annarri.
Svo jákvæð urðu viðbrögðin að hverfið var sett inn í
heildarskipulag Mílanóborgarárið 1954. Formgerðir
híbýla eru ýmsar: einbýlishús - raðhús en þau eru
sjaldgæf í Mílanó) og fjölbýlishús - og er þeim skipað
á milli göngugatna og opinna svæða ætlaðra til leikja
og útivistar. Rík áhersla var lögð á að náttúran nyti
sín og svæði útivistar væru aðlaðandi. Þessu er í
sjálfu sér öfugt farið í Gallaratese þar sem við minn-
umst borgarinnar fyrst og fremst. Manngerð, gróður-
vaxin hæð var hluti af verkefninu í QT8 og hún yrði
bæði greiðfær fyrir hjól bifreiðar og torfarin fyrir þá
sem það kysu.
Frumeinkenni ítölsku borgarinnar er gildi minning-
anna, sögunnar og hefðarinnar. Með upplifun, á einn
eða annan hátt, ávinnst þekking. Þessi þekking er
fengin í gegnum undirmeðvitundina þar sem minn-
ingar um forna atburði, tilfinningar og form safnast
fyrir. Það er vegna þessa minning sem hefðinni er
haldið við.
Hefðin er eitthvað sem við þekkjum og fáum öryggi
af. Með henni vitum við að hverju stefnir, hvernig
bregðast eigi við mismunandi aðstæðum og þar af
leiðandi hljótum við vissa öryggiskennd.
Með það í huga liggur ábyrgð arkitektsins í því að
vera meðvitaður og víðsýnn en ekki einangrast innan
sinnar stéttar. í rauninni þarf hann að vera heimspek-
ingur. Sem dæmi um það eru 17.000 nemendur í
Mílanó Politecnico. Þeir læra ekki einungis um arki-
tektúr heldur er nám þeirra álitið almennt nám eða
þekking. Þeir sem útskrifast fara í mismunandi starfs-
greinar, s.s. verða kennarar, skrifstofufólk og svo
auðvitað arkitektar og hönnuðir. Þetta er ekki hvað
síst mikilvægt á Ítalíu þar sem landið býður upp á
óteljandi ólík mynstur og tilbrigði til þess að leita sér
hugmynda að vinna út frá og umfram allt frjóvga
umhverfið. Einhæft umhverfi sljóvgar hugmynda-
flugið og deyfir meðvitundina - það er listin að lifa.
SANDKASSASANDUR
GÖNGUSTÍGAEFNI
SKRAUTMÖL
lábarið brúnamáð eða brotið,
ýmsir stærðaflokkar
BJÖRGUN HF.
Sævarhöfða 33, I 12 Reykjavík
sími: 87 18 33 fax: 67 45 57
frá og með 3. júní sími: 577 2000,
fax: 577 2005.
47