AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Side 24
Vorið 1972 hófu undirritaður og Þorvaldur
S. Þorvaldsson störf að hönnun Þjóðar-
bókhlöðu. Við mótun hússins var m.a.
höfð í huga samþykkt Alþingis frá 30.
apríl 1970 um að Þjóðarbókhlaða skuli reist í minn-
ingu 11 alda búsetu í landinu.
Þessari byggingu vildum við gefa fágað og virðulegt
útlit.
Við undirbúning hönnunar varð Ijóst að sveigjanleiki
innandyra réði miklu um form hússins ásamt kröfum
um auðvelt samband milli deilda safnsins. Þetta
leiddi til nánast ferningslaga húss með stórum
heilum gólfflötum og einfalds burðarvirkis.
Hugmyndir um útlit hússins mótuðust af þessum
kröfum og frá upphafi var gert ráð fyrir að 3. og 4.
hæð yrðu klæddar með efni sem væri andsvar við
sýnilegri steinsteypu annarra hluta byggingarinnar.
Leitað var fanga eftir efni sem uppfyllti formkröfur
og um leið gæti náð þeim blæ í áferð og lit, sem
liggur að baki hugmynd um útlit hússins.
Kannaðir voru ýmsir möguleikar, meðal annars trefja-
plastseiningar, marmari og klæðningar úr sléttu völs-
uðu áli, en á endanum urðu steyptir álskildir frá Alu-
suissefyrirvalinu. Aðferðsú sem notuð ervið steypu
þessara áleininga er upphaflega japönsk.
Við kynntumst þessari framleiðslu í Hannover 1977
og hófum þegar að afla gagna um hana.
Framleiðsluaðferðin er þróuð af fyrirtækinu KUBOTA
LTD. í Osaka í Japan og eru skildirnir steyptir í Okaj-
ima, verksmiðju þeirra.
Álskildirnir eru steyptir í sandmótum og eru að
meðaltali 7 mm á þykkt. Þeir eru af tveimur gerðum:
192 stk. gluggaeiningar 170 x 360 cm og 140 kg á
þyngd og 96 toppstykki 170 x 208 cm. Álblandan
sem notuð er í skildina, GAISi 12, er sérlega veður-
og saltþolin.
Aftan úr skjöldunum ganga ísteyptir armar fyrir vegg-
festingar. Stálvinklar eru festir með múrboltum í
steyptan vegg og armar og vinklar boltaðir saman.
Skildirnir eru litaðir með innbrenndu acryl/urethan
lakki, bakað við 250°C,60-80 ) á þykkt og litur er
RAL-3011.
Rými milli einangrunar (vindpappa) og álskjalda er
loftað neðan við neðsta skjöld, upp f þakrýmið og
tengist loftun þess. ■
Lóðrétt sneiðing.
Loftun
22