AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Qupperneq 62
Þetta óvenjulega útiljós er það nýjasta sem Epal býður á þessu
sviði. Ljósið hönnuðu Danirnir Claus Bonderup og Torsten
Thorup og kalla það Pharos sem þýðir viti á grísku. Fram-
leiðandinn er Focus. Án efa á þetta sérkennilega útiljós eftir
að höfða til íslendinga sem skilja betur en flestir aðrir þýðingu
vitans sem lýsir mönnum rétta leið.
Hér afhendir Hinrik Danaprins Eyjólfi Pálssyni í Epal heiðurs-
pening sem er árleg viðurkenning veitt erlendum fyrirtækjum
fyrir að kynna og selja danskar vörur.
esk kókosteppi í versluninni frá fyrsta degi, einstök
framleiðsla, bæði vönduð og sterk. Enn kom að því
að húsnæðið var orðið of lítið og þá brá Eyjólfur á
það ráð að fá arkitektinn Manfreð Vilhjálmsson til þess
að hanna hús með rekstur fyrirtækisins sérstaklega í
60
huga. Húsið reis í Faxafeni 7 og fyrir teikningarnar
hlaut Manfreð Menningarverðlaun DV árið 1988. í
því tilefni lét Eyjólfur þau orð falla að rækju menn
verslun og gerðu miklar kröfur til hönnunar á vörum
sínum væri ekki nema eðlilegt að láta sérhanna hús-
næði utan um reksturinn. Hönnun hússins þótti takast
frábærlega vel og falla í einu og öllu að markmiðum
fyrirtækisins - að vera í senn verslun og sýningarsalur
fyrir vandaða hönnun og listmuni, allt eftir því hvað
er á dagskrá hverju sinni.
Epal hefur með starfsemi sinni stuðlað að því að færa
framleiðslu á erlendri hönnunarvöru hingað til lands
ekki síður en kynna íslenska hönnuði og koma verk-
um þeirra á framfæri, í framleiðslu og á markaðinn
hérlendis sem erlendis.Sem dæmi um erlendar hönn-
unarvörur, sem hér eru nú framleiddar, eru húsgögn
danska hönnuðarins Flemmings Hvidts. Epal flutti
um tíma inn húsgögn Hvidts sérstaklega ætluð
öldruðum og hreyfihömluðum, en þessi húsgögn eru
nú framleidd hér á landi eftir teikningum Danans.
Epal hefur einnig látið framleiða sófa eftir hinn fræga,
danska hönnuð og listamann Ole Kortzau og hefur
sá sófi verið sýndur víða um heim, meira að segja
allt austur í Japan. Ole Kortzau og hönnuðurinn Ole
Gormsen voru auk þess fengnir til að teikna sófa í
anddyri hins þekkta hótels Tre Falke í Kaupmanna-
höfn en sófarnir voru framleiddir á vegum Epals á
fslandi.
VERK ÍSLENSKRA HÖNNUÐA
Framleiðsla Epals á verkum íslenskra hönnuða rís
þó án efa hæst í hugum okkar hér á landi. Nefna má
borð eftir Þórdísi Zoéga, borð eftir Emmu Axelsdóttur
og Elísabetu Ingvarsdóttur. Þær stöllur hafa báðar
unnið hjá Epal sem innanhússhönnuðir við að leið-
beina viðskiptavinum verslunarinnar, en þjónusta við
viðskiptavini er veigamikill þáttur í starfsemi Epals.
Borðið, sem nefnist Triola, hefur vakið mikla athygli,
verið sýnt víða og selst vel. Þá átti Epal frumkvæðið
að því að hafin var framleiðsla á trauþrykki eftir Jónu
S.Jónsdóttur textílhönnuð. Hér er um að ræða
gluggatjaldaefni sem framleitt er í Hollandi. Fjölmargir
hönnuðir og verk þeirra hafa auk þess verið kynnt á
sýningum hjá Epal. Þeirra á meðal má nefna stóla
eftir Leo Johansson.sem býr og starfar í Svíþjóð, sófa
eftir Guðrúnu Margréti Ólafsdóttur og Oddgeir Þórð-
arson, sem listamaðurinn Þorlákur Kristinsson (Tolli)
málaði með textíllitum, skartgripi eftir Pétur Tryggva
skartgripahönnuð og ótalmargt fleira, enda hefur