AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Síða 36

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Síða 36
byggingu að utan. Form og notkun (tegund ) bygg- ingarinnar skiptir þar miklu máli. Stærð hennar, efni burðarvirkis og áhrif umhverfisins eru einnig mikil- vægir þættir. Einnig þarf að skoða byggingaraðferð, endingu klæðningarinnar og kostnað, bæði stofn- kostnað og viðhaldskostnað. Viðhalds- og rekstrar- þáttur bygginga hefur verið vaqmetinn og eru allt of mörg dæmi þess að ný hús þurfi mikið viðhald eftir stuttan tíma. Þar koma kostir einangrunar og klæðn- ingar utan á steypta vegginn í Ijós. Það er mikilvægt, að „karakter" hússins og efnið sem notaáséu í samræmi. Flestum þætti trúlegastfurðu- legt að sjá þjóðleikhúsið einangrað að utan og klætt með bárujárni. Yrði það hins vegar einangrað að ut- an, múrhúðað og steinað líkt og yfirborð þess er í dag, væru flestir sáttir við þá lausn. Múrkerfið getur einmitt gefið mikla möguleika þegar einangra á steinsteyptan vegg að utan og klæða með endanlegri klæðningu. Það sameinar ríkjandi hefð fyrir einhvers konar steyptu yfirborði og kostinn við að einangra hús að utan. Múrkerfi hentar jafnvel á nýbyggingar sem eldri byggingar, ekki síst þar sem mikilvægt er að halda upprunalegu „steinsteypu" yfir- bragði hússins. Kerfið hefur ekki ákveðna stefnu þegar litið er á veggflötinn og fá samskeyti. MÚRKERFIÐ Skilgreina má múrkerfið sem einangrun utan á vegg og múrhúðun úr meira en einu lagi, styrkta með bendineti. Hér verður fjallað nánar um íslenskt múr- kerfi sem byggist upp á þennan hátt. Kerfið, sem nefnist ELGO-múrkerfi, hefur verið í þróun og fram- leiðslu undanfarin ár.Framleiðandi múrkerfisins er Steinprýði hf. Það hefur staðist NORDTEST NT BUILD nr. 66 prófunaraðferð, ásamt öðrum þolprófum sem framkvæmd hafa verið af RB. og öðrum rannsóknar- stofnunum. Kerfið er byggt upp á eftirfarandi hátt: 1. Utan á steyptan vegg er einangrunarplast fest með þar til gerðum festingum sem boltast í vegginn með múrboltum. Einnig má líma plastið á vegginn undir vissum kringumstæðum. Notað er mismun- andi þykkt einangrunarplast eftir því hvort um ný- byggingu er að ræða eða endurnýjun á eldra húsi. 2. Utan á einangrun er dreginn sérstakur grunnmúr með bendineti úr glertrefjum. 3. Yfir grunnmúrinn er dreginn sérstaklega trefja- styrktur sementsbundinn múr sem lokayfirferð. Mis- munandi möguleikar eru á yfirborðsmeðhöndlun. Hægt er að hafa yfirborðið slétt og málað, hraunað, mynstrað og steinað með steinsalla. Kerfið er mjög létt miðað við styrk og vinnslutími er stuttur miðað við að þetta kerfi er byggt á sements- sandgrunni. Vinnslutími er allt niður í 10 daga á full- búnu kerfi, miðað við eðlilegt hitastig og umhverfis- aðstæður. Allar brúnir og kantar á múrkerfinu eru styrktir sér- staklega, annaðhvort með aukabendineti eða sér- stökum blikkvinklum. Einnig eru notaðar þenslu- raufar þar sem skipta þarf múrkerfinu í minni fleti. Vandaður frágangur með vatnsbrettum er við neðri brún glugga og hurða. Það er mikilvægt að vanda allan frágang við múr- kerfið, allt frá byrjun til enda. Góður undirbúningur er nauðsynlegur til þess að halda vel utan um alla þræði framkvæmdarinnar. Hönnun er fyrsta skrefið eftir að valin hefur verið sú leið að nota múrkerfið. Hanna þarf öll frágangsdeili áður en framkvæmdir hefjast. Þetta þarf að gera til þess að losna við „reddingar á staðnum á síðustu stundu". Til eru ýmiss konar deililausnir sem sýna almennan frágang múrkerfa í meginatriðum. Engu aðsíðurþarfaðaðlagadeililausnir viðkomandi verki. Annar mikilvægur þáttur við uppsetningu múrkerfis- ins eru aðstæður á byggingarstaó og síðast en ekki síst handverkið sjálft. Uppsetning múrkerfisins ætti ávalt að vera í höndum fagmanna til þess að tryggja vönduð vinnubrögð. Segja má að keðjan verði aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn. Þess vegna þarf undir- búningur, hönnun og öll framkvæmdin að vera vel útfærð til þess að eiginleikar múrkerfisins njóti sín. Líkt og allt annað efni til bygginga þarf múrkerfið eðlilegt eftirlit og viðhald til þess að ending og þeir eiginleikar í útliti sem sóttst er eftir haldi sér. Notkun á íslensku múrkerfi er áhugaverður kostur fyrir íslenska arkitekta. Það gefur möguleika á að ein- angra steypt burðarkerfi á réttan máta, um leið og kerfið gefur ýmsa valkosti á endanlegri áferð út- veggjarins. Kerfið höfðar til íslenskrar byggingar- hefðar, þar sem steinsteypuarkitektúr er annars vegar. Múrkerfið þolir einnig verðsamanburð við önnur kerfi þar sem klætt er utan á einangrun og heildar byggingar - og rekstrarkostnaður er borinn saman. ■ 34
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.