AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Síða 31

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Síða 31
RANNSÓKNIR Til þess aö geta leiðbeint um notkun þessara marg- víslegu klæöningarefna og draga sem mest úr mis- tökum eru rannsóknir hafnar á öllum þáttum loftræstra klæöninga.Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins ásamt Almennu verkfræðistofunni, Byggingardeild Reykjavíkurborgar og ístaki hf. hafa sameiginlega fengið styrk frá Tæknisjóði íslands og Húsnæðis- stofnun ríkisins til rannsókna á loftræstum útveggja- klæðningum. Auk þess hafa Garðastál hf., Vírnet hf., Byko hf. og Húsasmiðjan hf. styrkt verkefnið. Verkefnið er í þremur áföngum og stefnt er að útgáfu verklýsinga, deililausna og annarra hjálpargagna fyrir hönnuði og notendur.Verkefnið er áætlað sem þriggja ára verkefni og lýkur fyrsta árinu í vor. Þegar hafa vettvangskannanir og annað starf skilað nokkrum árangri og a.m.k. skerpt þekkingu á þeim vandamálum sem á þarf að taka. Verkefnið beinist að þremur aðalþáttum loftræstra klæðninga, þ.e. klæðningarefnunum, festingum þeirra og loftun. Einnig verður umhverfi klæðninganna mælt, t.d. loft- raki, hiti og loftþrýstimunur. FRAMTÍÐARHORFUR Heyrst hafa raddir sem lýsa framtíðinni á nokkuð hroll- vekjandi hátt. Flest hús verði annaðhvort með sléttri plastklæðningu eða marglitum blikkkápum í æpandi litum. Ekki er þó ástæða til að ætla að þessi framtíðarsýn rætist. Byggingarmenn eru að ná æ betri tökum á þessari aðferð til að hlífa húsunum fyrir íslenskri veðráttu. Fjölbreytnin eykst stöðugt og þekking á góðum og heppilegum lausnum verður sífellt út- breiddari. í Ijósi þess er víst að hér er komin mjög góð aðferð við veðurvörn sem einnig á eftir að minnka viðhalds- þörf útveggja verulega í framtíðinni þar sem henni er beitt vel. MÚREINANGRUNARKERFI almennt Notkun múreinangrunarkerfa, eins og við þekkjum þau hér á íslandi, á rætur að rekja til Þýskalands en þar hófst þróun kerfanna á sjötta áratugnum. Með áherslu á aukna einangrun húsa víða erlendis í kjölfar olíukreppunnar berast kerfin til Norðurlanda í auknum mæli. Notkun þar var einkum í formi endureinangr- unar á eldra húsnæði og vísvitandi endurnýjunar á yfirborði þess. Hingað til lands koma svo kerfin upp úr 1980 sem viðgerðarkostur fyrir illa farnar stein- steyptar byggingar í kjölfar könnunar Rb á viðgerðar- kostum á alkalískemmdum. UPPBYGGING Mynd 3 sýnir þversnið í hefðbundið múreinangrunar- kerfi. Næst burðarveggnum er einangrun, sem fest er á vegginn með lími og/eða þar til gerðum festing- um, dýflum. Utan við einangrunina kemur síðan múr- inn sem skiptist í undirmúr (styrktarlag) með styrktar- neti og þar yfir svokallaðan yfirmúr (veðurhlíf-kápa). Andstætt loftræstu klæðningunum liggur nú veður- kápan þétt að einangruninni. MYND3: Uppbygging hefðbundins múreinangrunar- kerfis. Algengast er að greina á milli tveggja gerða múrein- angrunarkerfa sem hafa svipaða grunneiginleika: Akrýlbundin múreinangrunarkerfi (þunnur bentur múr, bindiefni er eingöngu plast eða plast með sem- entsíblöndun) Dæmi um nokkur vörumerki: Capatect, Ispo og Sto. Sementsbundin múreinangrunarkerfi (þykkari bentur múr með sementi sem bindiefni). Dæmi um vöru- merki: ímúr og Serporock. Auk þessara tveggja gerða finnast aðrar gerðir múr- einangrunarkerfa á markaðnum, t.d. með kalksem- entsblöndu sem bindiefni. Eitt af því mikilvægasta sem hafa þarf í huga við hönnun múreinangrunarkerfa er að ekki myndist skaðlegar sprungur. Orsakir sprungumyndunar í múr geta verið margvíslegar og skipta bæði útfærsla kerfannaog efniseiginleikar þar miklu máli. Mikilvægt er að jafnvægi náist milli áraunar og efnisstyrks. Til að þetta takist þurfa allir þættir múreinangrunarkerf- 29
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.