AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Blaðsíða 15

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Blaðsíða 15
TÍÐARANDI Halldór Gíslason, prófessor, Hönnunar- og byggingar- listardeild LHI List og tíðarandi er það sem gerist meðan við erum upptekin við að vera frumleg. Listræn framsetning er mis- tök sem bíða eftir að gerast. Það var breskur listagagnrýnandi sem sagði að við þyrftum einungis tvö lýsingar- orð í gagnrýni á listum: „Oh wow!" annarsvegar og „So what!“ hinsveg- ar. Þegar við lítum í kringum okkur þá sjáum við listræna hönnun allsstaðar. Kaffibollinn, ruslpósturinn sem dettur jafnt og þétt um bréfalúguna, sæng- urverið sem við liggjum undir, skiltin á götunum, kvístur úr bárujárni o.s.frv. Fyrir okkur er jafnmikilvægt að horfa á daglegt umhverfið kringum okkur eins og að einbeita okkur að einhverj- um verkum sem blásin eru út af skólakennurum og gagnrýnendum. Þetta er að gerast áþreifanlega í þeirri tísku sem er við líði þessa dagana þegar ungir hönnuðir eru að skoða „ómerkilega" framleiðslu síðustu ára- tuga í lágtækni. Lélega framsett skólablöð, plasthúðuð neyðarupplýs- ingaspjöld flugfélaganna og auglýs- ingar frá sjöunda og áttunda áratugn- um eru uppsprettur hugmynda og stíls þessa dagana. Núverandi kom- andi kynslóð er ekki sátt við stjörnu- dýrkun hönnuða þar sem hönnuðir eru á kápum tímaritanna, eru mynd- aðir í hallo magazine. Flugmyndin í dag er að hönnuðurinn eigi oft ekki að sjást, vera ósjáanlegur baksviðs sem rótari fyrir lífið. Vinnan kringum okkur er „óvart-list“ þar sem hver sá sem hafði fyrir því að skapa hana var að rembast við að gera rétt en vegna vanþekkingar á listheiminum og tæknilegrar vankunn- áttu tókst að skapa sérstakan stíl. Það sem við erum að skoða er það sem Marcel Dunchamp kallaði „object trouvé" - hinn uppgötvaða hlut, sem öðlast sinn „status" vegna þess að við sem þykjumst hafa vit á stíl og stemmningu lyftum honum upp á stall og segjum: „Oh wow!“ Hlutirnir öðlast þennan „Oh wow!“ „status“ án þess að höfundur þeirra ætlaðist til þess og þess vegna kenn- ir ekki grasa harðlífis í sköpun þeirra, alveg öfugt við það sem gerist innan veggja listaháskólans. Kröfurnar um stíl, grunnþekkingu og hugmynda- fræði að baki (sem kemur ekki síður frá hjarta höfunda en gagnrýnenda) eru slíkar að það skapast þrengingar í sköpunarferlinum. Því leitum við fanga í því sem framleitt hefur verið af óþekktum höfundum með ómengað hjarta. Þegar við lítum aftur fyrir okkur í sög- unni og þegar fjarlægðin er orðin nógu mikil þá tökum við undir orð Duchamps um að listir geti legið í hverju sem er, en það var ekki fyrr en á sjöunda áratugnum sem popplista- menn fóru að leita fanga í hversdeg- inum og við hér njótum góðs af návist Dieters Roth hér á íslandi á þeim árum, annars hefðum við orðið að fagna þessu viðmóti 10 árum síð- ar en við gerðum, eins og með flest annað sem við hermum eftir ná- grannaþjóðum okkar. Við erum í dag móttækilegri en fyrr fyrir því sem er að gerast í sjónrænu umhverfi okkar, eins og má sjá í skoðun okkar á götumenningu, sem var fyrrum litin sem barnaleg úthverfamenning, en hefur núna öðl- ast stóran hóp athafnamanna, hvort sem er í formi bílskúratónlistar, vefsíðna, stensla, glugga og garð- skrauts. Við erum reiðubúin að skoða af virðingu listsköpun sam- tímamanna sem setja fram „ready- mades“ eða fundna hluti eins og þegar breska listakonan Tracy Emin sýndi sjálfsmynd af sér í formi rúms með krumpuðum sængurfötum, not- uðum smokkum og vodkaflösku und- ir heitinu: „Rúmið mitt“. Sameiginlega leitum við að stemmn- ingu tíðarandans og oft finnum við hana þar sem samtímamenn hans hafa ekki tekið eftir, eins og þegar við leitum fanga í póstkortum, gömlum klámkortum, dagatölum o.s.frv. Erró er einn þeirra sem hafa lyft á stall mörgum þessara sjónrænu ímynda, til dæmis í seríu sinni af norðurafrísk- um gleðikonum eða sjónvarpsmynd- um frá geimkapphlaupinu. Það er okkar að njóta þess sem er að gerast í kringum okkur - og hvern- ig förum við að því að vita hvar skal líta? Með því að taka sjónræna hegðun í fjarlægum tíðaranda síðastliðinna áratuga til skoðunar og reyna að finna út hvers vegna hver tími myndbirtist í því formi sem gerð- ist. Þá öðlumst við sögulegan skiln- ing um leið og kannski slaknar á rembingnum í okkur við að hvert verk okkar verði meistaraverk þegar þess er krafist að verkið sé gott frábært, vel unnið af mikilli næmni fyrir tímanum og aðstæðum án þess að það sé meist- araverk. Bækur sem fjalla um myndbirtingu tíðarandans: Gillo Dorfles: Kitsch; Laurence King: Design for Impact; Caroline Archer: Tart Cards. ■ Búnaður til reyklosunar D+Hi og daglegrar útloftunar D+H er leiðandi í framleiðslu útloftunarbúnaði Danfoss hf Skútuvogi 6 Sími 510 4100 www.danfoss.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.