AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Side 54

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Side 54
Hákon Ólafsson, forstjóri Öndvegis- setur á Rb Föstudaginn 31. október opnaði Valgerður Sverris- dóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra formlega önd- vegissetur (center of excellence) við Rb á sviði flot- fræði sementsbundinna efna. Ekki þarf að tíunda kosti steinsteypu og mikilvægi þessa byggingarefnis fyrir íslendinga og þróun hér á landi. Þrátt fyrir alla þá kosti sem steinsteypan býr yfir hefur samt ávallt fylgt henni eitt meginvandamál. í steypuna hefur þurft að blanda vatni langt umfram það sem þarf til þess að efnahvörfin eigi sér stað og steypan harðni. Þetta hefur verið nauðsynlegt til þess að unnt sé að koma henni ( mótin og fá viðun- andi þjöppun. Umframvatnið rýrir þó gæði steypunn- ar og íblöndun vatns á byggingarstað hefur verið meginvandamál frá upphafi, en menn hafa viljað meira vatn til þess að létta sér vinnuna við niðurlögn og titrun. Undanfarna áratugí hafa orðið nokkrar framfarir við þróun þjálniefna sem auka þjálni steinsteypu án þess að skaða hana. Það er þó ekki fyrr en á seinustu árum að raunveruleg bylting hefur átt sér stað með tilkomu sjálfútleggjandi steinsteypu (SÚLÞAKK steypu) sem á ensku nefnist Self Compacting Concrete ( SCC ). Þessi bylting byggist á tvennu: annars vegar á þróun á virkari þjálniefnum en áður voru til og hins vegar á nýrri mælitækni til þess að mæla áhrif efnanna á flæðanleika steinsteypunnar þar sem flæði er skilgreint eins og í seigfljótandi vökvum. Þessi bylting er í fullum gangi og SÚLRAKK steypa er notuð í stöðugt vaxandi mæli en verulegra rannsókna er þó þörf áður en hún nýtist í allar steyp- ur. (slendingar eru svo heppnir að flotfræði sements- bundinna efna hefur verið áherslusvið við Rann- sóknastofnun byggingariðnaðarins sl. áratug. Við stofnunina starfa m.a. tveir sérfræðingar, sem lokið hafa doktorsprófi á þessu sviði, annar með áherslu á fræðilega flotfræði en hinn með áherslu á mælitækn- ina og hefur hann þróað það mælitæki sem þykir best í heiminum í dag og nefnist BML viscometer. Er það framleitt á íslandi og hefur verið selt til helstu rannsóknastofnana í öllum heimsálfum. Vegna viður- kenndrar sérþekkingar á sviðinu hefur verið unnið við Rb undanfarin ár að fjölda rannsókna- og þróunar- verkefna fyrir marga helstu framleiðendur í sements- og steypuiðnaðinum í Evrópu og Ameríku auk rann- sókna, sem styrkt hafa verið af RANNÍS og fleiri inn- lendum aðilum. Sum þessara verkefna eru grunnur að doktorsnámi og meistaranámi sem unnið er að við Rb. Við opnun setursins lauk Valgerður ávarpi sínu með eftirfarandi orðum: „Góðir áheyrendur. Uppbygging aðstöðu og sérfræðiþekking á sviði flotfræði stein- steypu er dæmi um að lítil lönd og litlar stofnanir geta orðið leiðandi í heiminum á vissum þröngum sviðum sem krefjast mikillar sérfræðiþekkingar og góðrar aðstöðu. Þótt flotfræði steinsteypu sé þröngt sérfræðisvið eru áhrifin mikil því að þetta svið er grundvöllur að þeirri byltingu sem nú á sér stað í steypuiðnaðinum og er raunar á byrjunarstigi. Mér er það því sönn ánægja að opna þetta öndvegissetur og óska Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins vel- gengni í störfum sínum á þessu sviði." ■ 5 2 avs

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.