AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Side 61
Þórólfur Árnason, borgarstjóri
Skoðun:
Uppbygging í
miðborginni
Á fundum mínum með borgarbúum síðustu vikur hef
ég verið að útlista helstu stefnumið borgarinnar á
næstu misserum. Ég hef viljað staldra við þrjú:
uppbyggingu þjónustumiðstöðva, umferðarmálin og
uppbygginguna í miðborginni. Hér á þessum vett-
vangi langar mig að leiða svolítið hugann að því
síðasttalda. Nýtt skipulag á gamla hafnarsvæðinu í
miðborginni, frá Faxaskála í austurhöfninni vestur fyr-
ir Mýrargötusvæðið er trúlega eitt stærsta skipulags-
verkefni sem við höfum staðið frammi fyrir á byggðu
bóli á íslandi.Þarna á meðal annars að reisa eitthvert
stærsta hús sem risið hefur hér á landi, Tónlistar- og
ráðstefnuhúsið með tengdu hóteli. Nýverið kom síð-
an inn í þá umræðu ósk Landsbanka íslands um lóð
syðst á þessum reit. í framhaldi í vesturátt frá þessu
mikla uppbyggingarsvæði er svo Mýrargötureiturinn
þar sem byggja á upp með nýjum formerkjum á
gömlu athafnasvæði, rétt eins og á Faxaskálasvæð-
inu. Þriðjudaginn 21. október síðastliðinn samþykkti
borgarráð að velja hóp, sem samanstendur af VA
arkitektum ehf., Hönnun hf., Landmótun ehf. og
Birni Ólafs til að vinna að rammaskipulagi fyrir svæð-
ið. Það þarf varla að fara mörgum orðum um það
hversu mikilvægt er að vel takist til. Báðir þessir
reitir eru í miðborg höfuðborgar íslands og mun
skipulag þeirra bera kynslóð okkar vitni um ókomin
ár.
Borgaryfirvöld hafa hvað þessa tvo reiti snertir byggt
á hugmyndum fagaðila, því samkeppni um skipulag
þeirra hefur farið fram. Það endurspeglar einnig
breyttar áherslur hjá borgaryfirvöldum með hvaða
hætti úr því var skorið hvaða aðilar yrðu fyrir valinu
við hönnun uppbyggingarinnar á Mýrargötureitnum.
Þar voru það ekki einungis hugmyndirnar sem kepp-
endur lögðu inn sem skiptu máli, heldur hafði veru-
legt vægi sá þáttur hvernig þessir aðilar sjá fyrir sér
samvinnu við íbúa og hagsmunaaðila í skipulagsferl-
inu.
Skipulags- og byggingarsvið borgarinnar hefur áður
unnið skipulagsvinnu af þessum toga sem og Fast-
eignastofan, nú síðast við hönnun Ingunnarskóla í
Grafarholti.
Með vinnu af þessu tagi er vitaskuld verið að færa
vald frá stjórnsýslu borgarinnar og jafnframt lögð á
Þórólfur Árnason, borgarstjóri
herðar hönnuða ábyrgð, sem að mestu leyti lá hjá
embættismönnum eða kjörnum fulltrúum borgarbúa
áður.
Opinion:
Redevelopment
of the Inner City
Samstarf af þessu tagi er af hinu góða, því með
þessu aukast líkur á því að þeir sem að hönnuninni
koma skilji sjónarmið hagsmunaaðila og aukin sátt
náist um framkvæmdir, en það er sérstaklega mikil-
vægt þar sem unnið er að þéttingu eldri byggðar.
Það má líka orða þetta þannig að sérfræðiþekkingu
hönnuða þurfi að sætta við sjónarmið íbúa, sem ef til
vill ráðast af meiri skammtímasjónarmiðum en
sérfræðingunum er tamt að hugsa um. En slíkar
sættir eru hönnuðum engin nýlunda, því þeir eru ekki
eylönd frekar en aðrir. Þeir hafa hingað til þurft að
taka tillit til ótal sjónarmiða embættismanna og
stjórnmálamanna við frágang verka sinna og tekist
það alveg prýðilega. þessir aðilar hafa talið sig vera
að endurspegla viðhorf íbúa í sínum þætti skipulags-
vinnunnar, en ég hef engar áhyggjur af að arkitekt-
um, hönnuðum og skiplagsfræðingum takist síður
upp þegar þeir hafa beint samráð við íbúa og aðra
hagsmunaaðila við hönnunarvinnu sína. Mér finnst
meira að segja sennilegt að betur takist til. ■
| of Reykjavík
si
'O
'Ö During my series of meetings with the citizens of
Reykjavík over the last few weeks, I have formulated
the city’s main objectives for the next few years. I
have emphasised three of them: the building of
service centres, traffic, and the inner city redevelop-
ment.
New development of the old harbour area in the City
Centre, from Faxaskáli in the east harbour and west
of the Mýrargata-area, is probably the largest
planning project undertaken in an urban area in
lceland. One of the largest construction projects in
this country will be located in this area, a cultural
center with concert halls, conference venues and a
hotel complex. In addition, The National Bank of
lceland (Landsbankinn) has recently expressed inter-
est of obtaining a building site for their headquarters
on the southern part of this area. Further west lies
the Mýrargata-area, where similar redevelopment of
a former industrial zone will take place, just as in the
Faxaskáli-area. On Tuesday, October 21 st, the City
Council agreed to select a group of consultants
consisting of VA Architects ehf., Hönnun hf.,
Landmótun ehf. and Björn Ólafs to prepare a struc-
ture plan for this area.
It is extremely important that the redevelopment of
these areas will be successful. Both are located at
the cultural, political and administrative center of
lceland and their planning will bear our generation
witness for many years to come.
With regard to planning policies for these areas, the
city authorities have had recourse to the ideas of
professionals as a planning competition has been
held. The method of choosing consultants to assist
in the development of the Mýrargata-area also
shows a new emphasis by the city authorities. The
design was not the only criteria in the competition,
as the proposed cooperation with area residents
and other interested bodies during the planning
process were quite important.
The Planning and Building committee of the City has
previously approached planning ín this way, and the
same applies to the Facilities Managements with
regards to a recent designing and building of an ele-
mentary school.
By this approach, power is of course being trans-
ferred from the city administration, and the design-
ers are called upon to shoulder responsibilities
that previously lay with city employees or elected
officials. Cooperation of this nature is, however, for
the good as is more likely that the designers will
better understand the opinion of interested bodies
and as this will lead to more agreement about new
development. This is particularly important where
densities of development are being increased.
It can also be said that the designers’ specialised
knowledge is needed to come to terms with resi-
dents’ opinion, which is perhaps more short-sighted
than that of the specialists. This settling of disputes
is nothing new for designers, as they do not work in
a vacuum any more than the rest of us. They have
always had to consider many points of view, both
from city employees and politicians in their work,
and have done this admirably. These people have
considered themselves reflecting the attitudes of the
inhabitants in their part of the planning process and
I do not worry that architects, designers and plan-
ners will be less successful when they cooperate
directly with the inhabitants and other interested
bodies in their designs. I am even of the opinion that
they could be more successful. ■
5 8 avs
avs 59