Leyfi til að elska - Mar 2023, Page 3
Í þessu þriðja tölublaði Leyfi til að elska birtum við
þýðingu á rannsókn á upplifun útilokaðra foreldra
af foreldraútilokun. Rannsakendur eru þrír og koma
frá Háskólanum í Tasmaníu, Ástralíu. Greinin birtist
fyrst í ritrýnda vísindaritinu The American Journal of
Family Therapy árið 2022. Rannsakendur greindu sex
þemu sem einkenndu upplifun útsetta foreldrisins af
foreldraútilokun og útilokandi hegðun: 1) aðferðir, 2)
fjarlægð, 3) kerfið, 4) geðheilsa, 5) heimilisofbeldi, og
6) spjörun (e. coping mecanism).
Engin sambærileg rannsókn hefur verið gerð á
Íslandi en búast má við að einkenni og afleiðingar
foreldraútilokunar hér á landi séu þær sömu og
annars staðar í heiminum. Þó má gera ráð fyrir
að smæð samfélagsins á Íslandi auki enn á þann
kerfisvanda sem mætir útilokuðum foreldrum.
Þekking á foreldraútilokun hér á landi er
ákaflega takmörkuð sem veldur því að þau úrræði
sem útilokað foreldri ætti að geta nýtt sér s.s.
barnavernd, sýslumannsembættin og dómstólar
gera ekki greinarmun á foreldraútilokun og því
þegar barn hafnar samskiptum við foreldri af
raunverulegri ástæðu.
Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi árið 2019
Moldóvska ríkið fyrir vanrækslu sem leiddi til þess
að móðir missti alfarið samband við syni sína vegna
foreldraútilokunar. Niðurstaða dómsins var sú að
barnaverndaryfirvöld hefðu átt að þekkja einkenni
foreldraútilokunar á frumstigi útilokunarinnar.
Með rangri greiningu (skorti á þekkingu á
foreldraútilokun) hefðu yfirvöld í raun lagst á sveif
með föður drengjanna og stuðlað að varanlegu
tengslarofi þeirra við móður sína.
Innan þess þrönga hóps sálfræðinga sem taka að
sér að vera dómkvaddir matsmenn hér á landi
er ekki aðeins um skort á faglegri þekkingu á
foreldraútilokun að ræða heldur verulega fordóma í
garð hugtaksins og þeirra sem telja sig vera þolendur
foreldraútilokunar. Í forsjármálum fara dómkvaddir
matsmenn í raun með rannsóknar- og dómaravald
því afar sjaldgæft er að dómarar í forsjármálum dæmi
gegn matsgerðum sérfróðra matsmanna. Skaðinn
sem það veldur útilokuðum börnum og foreldrum að
sérfróðir matsmenn í málefnum þeirra séu fáfróðir
og fordómafullir er því ómældur. Brýn þörf er á
fræðslu og faglegri umræðu um þetta málefni innan
fagstétta sem það snertir. Sú vinna þarf að byggja á
sannreyndri þekkingu og ritrýndum rannsóknum
vísindamanna, bæði innlendra og erlendra.
Árið 2019 gerðu þrír hjúkrunarfræðinemar við
Háskólann á Akureyri viðamikla rannsóknaráætlun
um áhrif foreldraútilokunar á andlega og
líkamlega heilsu útilokaðra foreldra. Fullt tilefni
væri til að dusta rykið af þeirri áætlun og hrinda
rannsókninni í framkvæmd. Sjá https://skemman.is/
handle/1946/33930.
Foreldrajafnrétti og rannsóknasjóður Heimis
Hilmarssonar, Leyfi til að elska, hvetur nemendur
og fræðafólk á sviði sálfræði, félagsráðgjafar,
hjúkrunarfræði og annarra fræðasviða sem málið
varðar til að beina rannsóknum sínum að þessu
mikilvæga málefni. Hægt er að sækja um styrki hér:
https://foreldrajafnretti.is/rannsoknasjodur
Ritstjórn
Mannréttindadómstóll Evrópu gerir kröfu
til ríkja að barnaverndaryfirvöld þekki
einkenni foreldraútilokunar.
3
LEYFI TIL AÐ ELSKA FORELDRAJAFNRÉTTI