Leyfi til að elska - mar. 2023, Blaðsíða 7

Leyfi til að elska - mar. 2023, Blaðsíða 7
Mikilvægt er að taka fram að til þessa hafa heimildir um útsetta foreldra komið frá öðrum en útsettu foreldrunum sjálfum, til að mynda frá útsetta barninu, lögfræðingum eða geðheilbrigðisstarfsfólki (t.d. Bow o.fl., 2009; Lund, 1995; Viljoen og van Rensburg, 2014). Enn fremur hafa fræðin áður greint frá afmörkuðum tilviksrannsóknum, málaflokkum, eða reynslu lækna af því að vinna með útsettum foreldrum. Þessar lýsingar gefa ófullnægjandi mynd af upplifun útsettra foreldra af foreldraútilokun. Þar að auki eru aðferðafræðilegar takmarkanir á rannsóknum á sjónarmiðum útsettra foreldra, t.d. litlar úrtaksstærðir, sem gerir það að verkum að erfitt er að alhæfa um niðurstöðurnar (Baker og Andre, 2008; Friedlander og Walters, 2010; Godbout og Parent, 2012; Johnston, 2003; Kelly og Johnston, 2001; Vassiliou og Cartwright, 2001). Þá hefur engin rannsókn hingað til kannað sjónarmið útsettra foreldra í stóru alþjóðlegu úrtaki og greint heildarniðurstöðurnar með þemagreiningu. Í þessari rannsókn var því augum loks beint að stórum alþjóðlegum úrtakshópi útsettra foreldra og reynsluheimi þeirra eftir skilnað við útilokunarforeldrið, í þeim tilgangi að skilja betur sjónarhorn þessa hóps sem hingað til hefur lítið verið rannsakaður. Þessi rannsókn er könnun frekar en tilgátuprófun og miðar að því að rannsaka nánar reynsluheim útsettra foreldra að loknum skilnaði við útilokunarforeldrið (Hesse-Biber, 2010). A Ð F E R Ð ÞÁTTTAKENDUR Eigindleg gögn voru fengin frá 126 þátttakendum sem í lok netkönnunar lýstu upplifun sinni sem útsett foreldri af foreldraútilokun og útilokandi hegðun. Þátttakendur voru foreldrar sem höfðu verið útilokaðir frá börnum sínum á þeim tíma sem þeir svöruðu könnuninni. Þátttakendur voru karlar ( fjöldi = 59) og konur ( fjöldi = 67) á aldrinum 25 til 68 ára og búsett í ýmsum löndum: Ástralíu( fjöldi = 44), Belgíu ( fjöldi = 1), Kanada ( fjöldi = 12), Indlandi ( fjöldi = 1), Írlandi ( fjöldi = 2), Nýja Sjálandi ( fjöldi = 3), Bretlandi ( fjöldi = 3), og Bandaríkjunum ( fjöldi = 60). Nánari upplýsingar um persónuleikaeinkenni þeirra foreldra sem luku könnuninni má sjá í Balmer, Matthewson og Haines (2018). GÖGN Við rannsóknina var meðal annars stuðst við könnun á netinu. Í netkönnuninni voru 13 félagslýðfræðilegar spurningar sem þróaðar voru af rannsakendum og sneru að aðstæðum þar sem foreldraútilokun átti sér stað, auk þess sem þær miðuðu að því að ákvarða sameiginleg einkenni 7 GLEYMDA FORELDRIÐ: FORELDRAÚTILOKUN FRÁ SJÓNARHÓLI ÚTSETTA FORELDRISINS CLARE POUSTIE O.FL.

x

Leyfi til að elska

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leyfi til að elska
https://timarit.is/publication/1787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.