Leyfi til að elska - mar. 2023, Blaðsíða 5

Leyfi til að elska - mar. 2023, Blaðsíða 5
Gleymda foreldrið: Foreldraútilokun frá sjónarhóli útsetta foreldrisins Clare Poustie, Mandy Matthewson og Sian Balmer LY K I L O R Ð FORELDRAÚTILOKUN ÚTSETT FORELDRI ÚTILOKAÐ FORELDRI HEIMILISOFBELDI ÚTILOKUÐ FJÖLSKYLDA Ú T D R ÁT T U R Rannsóknin beindist að upplifun útsettra foreldra af foreldraútilokun og útilokandi hegðun. Eitt hundrað tuttugu og sex útsettir foreldrar svöruðu opinni spurningu í lok netkönnunar og sögðu frá reynslu sinni. Stuðst var við þemagreiningu Braun og Clarke (2006) til að greina þemu í gögnunum. Greind voru sex þemu sem lýsa reynslu útsettra foreldra af foreldraútilokun og útilokandi hegðun. Útsettir foreldrar lýstu því hvernig þeir upplifa líkamlega og tilfinningalega viðskilnað við börn sín, og þeir lýstu hvernig afskipti þeirra af „kerfum“ eins og réttarkerfi og barnaverndarkerfi taki af þeim toll, fjárhagslega og tilfinningalega. Foreldrarnir lýstu vanlíðan og áhyggjum af andlegri velferð barna sinna. Útsettir foreldrar litu á útilokandi hegðun sem birtingarmynd heimilisofbeldis. Útsettir foreldrar sýndu einnig fram á virka spjörunarhegðun (e. coping behavior). Niðurstaðan er sú að þörf sé á frekari rannsóknum, svo hægt sé að öðlast dýpri skilning á foreldraútilokun. Geðheilbrigðisstarfsfólk og lögfræðingar þurfa að vinna saman, svo hægt sé að veita útsettum foreldrum viðunandi stuðning. 5 GLEYMDA FORELDRIÐ: FORELDRAÚTILOKUN FRÁ SJÓNARHÓLI ÚTSETTA FORELDRISINS CLARE POUSTIE O.FL.

x

Leyfi til að elska

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leyfi til að elska
https://timarit.is/publication/1787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.