Leyfi til að elska - Mar 2023, Page 5
Gleymda foreldrið: Foreldraútilokun frá
sjónarhóli útsetta foreldrisins
Clare Poustie, Mandy Matthewson og Sian Balmer
LY K I L O R Ð
FORELDRAÚTILOKUN ÚTSETT FORELDRI ÚTILOKAÐ FORELDRI
HEIMILISOFBELDI ÚTILOKUÐ FJÖLSKYLDA
Ú T D R ÁT T U R
Rannsóknin beindist að upplifun útsettra foreldra af foreldraútilokun og útilokandi
hegðun. Eitt hundrað tuttugu og sex útsettir foreldrar svöruðu opinni spurningu
í lok netkönnunar og sögðu frá reynslu sinni. Stuðst var við þemagreiningu Braun
og Clarke (2006) til að greina þemu í gögnunum. Greind voru sex þemu sem lýsa
reynslu útsettra foreldra af foreldraútilokun og útilokandi hegðun. Útsettir
foreldrar lýstu því hvernig þeir upplifa líkamlega og tilfinningalega viðskilnað við
börn sín, og þeir lýstu hvernig afskipti þeirra af „kerfum“ eins og réttarkerfi og
barnaverndarkerfi taki af þeim toll, fjárhagslega og tilfinningalega. Foreldrarnir
lýstu vanlíðan og áhyggjum af andlegri velferð barna sinna. Útsettir foreldrar litu
á útilokandi hegðun sem birtingarmynd heimilisofbeldis. Útsettir foreldrar sýndu
einnig fram á virka spjörunarhegðun (e. coping behavior). Niðurstaðan er sú að þörf
sé á frekari rannsóknum, svo hægt sé að öðlast dýpri skilning á foreldraútilokun.
Geðheilbrigðisstarfsfólk og lögfræðingar þurfa að vinna saman, svo hægt sé að
veita útsettum foreldrum viðunandi stuðning.
5
GLEYMDA FORELDRIÐ: FORELDRAÚTILOKUN FRÁ SJÓNARHÓLI ÚTSETTA FORELDRISINS CLARE POUSTIE O.FL.