Leyfi til að elska - mar. 2023, Blaðsíða 11

Leyfi til að elska - mar. 2023, Blaðsíða 11
[Hún] segist deila því sem er í gangi með dagskrá íþróttaiðkunar o.s.frv. fyrir krakkana, en rukkar mig alltaf um íþrótta- eða tómstundagjöld eftirá. Hún lætur mig ekki einu sinni vita fyrirfram hvaða íþróttir eða tómstundir krakkarnir okkar eru skráðir í, og segir síðan að ég sé ömurlegt foreldri og það sé „engin furða að krakkarnir vilji ekkert með mig hafa“. Sumir þátttakendur nefndu að útilokunarforeldrið hefði breytt lögheimili barnsins til að koma í veg fyrir að útsetta foreldrið fengi sendar tilkynningar. [Þau voru] stöðugt að flytja, stundum tvisvar á ári og börnin voru látin skipta um skóla. Ófrægingarherferð gegn útsetta foreldrinu Algengt var að útsettir foreldrar nefndu dæmi þar sem útilokunarforeldrið fór af stað með ófrægingarherferð og talaði illa um útsetta foreldrið við barnið, til að eyðileggja tengslin á milli þeirra. Sonur [minn] tjáir mér að pabbi hans segi að ég sé heimsk og einskis virði. Hann notar hvaða tækifæri sem býðst til að gera mig tortryggilega. Útsettir foreldrar lögðu áherslu á skaðann sem hlýst af þessari útilokandi hegðun eða aðferð. [Börnin] eru mjög ringluð vegna þess að mamma þeirra talar neikvætt um mig við þau en þeirra upplifun er ekki neikvæð, sem ruglar þau í ríminu. Frásagnirnar bentu til þess að ófrægingaraðferðin leiddi til fáskiptni, ótta eða haturs hjá barninu gagnvart útsetta foreldrinu. Útsetta barnið í þessari könnun neitar núna að faðma mig eða kyssa, hún segir mér aldrei að hún elski mig og ef ég segi henni að ég elski hana þá hnussar hún bara. Margar frásagnir lýstu tilvikum þar sem útilokunarforeldrið tjáði barninu beint eða óbeint að útsetta foreldrið elskaði það ekki. Í hvert sinn sem dóttir mín biður um eitthvað dýrt (bíl o.s.frv.), þá er henni sagt að ef ég elskaði hana, þá myndi ég kaupa það fyrir hana. Þannig að ef ég hef ekki efni á einhverju þá notar dóttir mín það sem rök fyrir því að ég elski hana ekki. Í sumum frásögnum var minnst á það hvernig útilokunarforeldrið beitti stórfjölskyldu sinni eða vinum sínum í ófrægingarherferð sinni. Öll hans fjölskylda studdi við hegðun hans og lokuðu á mig og elstu dóttur mína, töluðu illa um okkur og lugu að öllum sem vildu heyra. Útsetta foreldrið þurrkað út úr lífi barnsins. Útsettir foreldrar minntust oft á þá tilfinningu að vera úthýst úr lífi barnsins síns, allt frá lokun á samskipti yfir í að upplifa sig „þurrkuð út“. Tvíburunum mínum hefur verið kennt að hunsa símtöl og skilaboð frá mér og fjarlægja mig af samfélagsmiðlum… engin samskipti. Útsettir foreldrar gáfu það í skyn að hegðun útilokunarforeldrisins miðaði að því að fjarlægja þá úr lífi barnsins á táknrænan hátt. Hann giftist vinkonu minni 4 mánuðum eftir að við skildum og þau hafa reynt allt til að láta stjúpmóðurina koma í staðinn fyrir mig sem móður barnanna minna. Til að mynda með því að kalla hana „mömmu” fljótlega eftir að hún flutti inn og kalla mig með fornafninu mínu. Margar frásagnir lýstu rofi á sambandi þar sem útsetta foreldrinu var að eigin mati markvisst og algjörlega úthýst úr lífi barni síns. 11 GLEYMDA FORELDRIÐ: FORELDRAÚTILOKUN FRÁ SJÓNARHÓLI ÚTSETTA FORELDRISINS CLARE POUSTIE O.FL.

x

Leyfi til að elska

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leyfi til að elska
https://timarit.is/publication/1787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.