Leyfi til að elska - mar 2023, Qupperneq 6
Foreldraútilokun á sér stað þegar barn tekur
afstöðu með öðru foreldri sínu og tekur
þátt í óréttmætri ófrægingarherferð gegn
hinu foreldrinu, sem barnið sýndi áður ást
og væntumþykju (Baker og Andre, 2008;
Gardner, 2002). Af ýmsum ástæðum kennir
útilokunarforeldrið barninu að hafa andúð á
hinu foreldrinu, að óttast hitt foreldrið þegar
það er í návist þess og forðast samskipti við það
(Darnall, 2011). Hegðun af þessu tagi kallast
útilokandi hegðun. Í þessari rannsókn er hugtakið
„foreldraútilokun“ notað um ferli þar sem barn er
útilokað frá útsetta foreldrinu í kjölfar útilokandi
hegðunar þess foreldris sem barnið hefur
skipað sér í lið með, þ.e. útilokunarforeldrisins.
Foreldraútilokun er ólík fráhvarfi, sem á sér stað
þegar barn hafnar foreldri af réttmætum ástæðum,
til dæmis vegna vanrækslu (Garber, 2011).
Hingað til hafa fræðin að mestu einblínt á að
móta hugtök og skilgreiningar á foreldraútilokun,
þ.e. rökræða hugmyndir um greinanleg
einkennamynstur eða þróa líkön til að fræðast
um þetta fyrirbæri frekar en að einblína á
raunverulegar upplifanir þeirra sem hafa orðið
fyrir foreldraútilokun (t.d., Bernet og Baker, 2013;
Drozd og Olesen, 2010; Lowenstein, 2013; Meier,
2009; 2010; Pepiton o.fl., 2012; Walker og Shapiro,
2010). Rannsóknir á einstaklingsbundinni reynslu
af foreldraútilokun hafa einkum beinst að hegðun
útilokunarforeldrisins (t.d., Baker, 2005; 2006;
Ellis og Boyan, 2010; Garber, 2011; Kopetski, 1998;
Rand, 1997) og sjónarmiðum útsetta barnsins
(t.d., Baker, 2005; 2006; Baker og Chambers, 2011;
Ben-Ami og Baker, 2012; Godbout og Parent, 2012;
Hands og Warshak, 2011; Johnston, 2003; Kelly og
Johnston, 2001).
Hvað varðar reynslu og áhrif á útsetta foreldra,
hafa einhverjar rannsóknir leitt í ljós sameiginlegar
tilfinningalegar afleiðingar hjá útsettum foreldrum,
eins og streitu, gremju, missi, ótta og vanmátt (Baker
og Andre, 2008; Baker og Darnall, 2006; Schwartz,
2015; Vassiliou og Cartwright, 2001). Baker og Fine
(2014) lögðu fram frásagnir 11 útsettra foreldra,
þar sem þeir lýstu langvarandi þjáningum yfir að
missa börn sín og óvissu með framhaldið. Þessar
niðurstöður eru í samræmi við niðurstöður Vassiliou
og Cartwright (2001) sem könnuðu tilfinningalega
líðan sex útsettra foreldra. Þessir foreldrar upplifðu
vanmáttartilfinningu sem leiddi til frekari
erfiðleika í samskiptum útsetta foreldrisins við
barnið, til að mynda erfiðleika við að bregðast
við tilfinningalegu ástandi barnsins og ögrandi
hegðun. Þetta viðhélt svo aftur foreldraútilokuninni
(Vassiliou og Cartwright, 2001). Enn fremur
hefur óánægja útsettra foreldra með þjónustu
geðheilbrigðisstarfsfólks og lögfræðinga sem koma
að þessum málum verið vandlega skjalfest (t.d.
Baker, 2010; Baker og Darnall, 2006, 2007; Baker og
Fine, 2014; Vassiliou og Cartwright, 2001). Önnur
rannsókn ( fjöldi = 10) beindist að útsettum mæðrum
og undirstrikaði það áfall sem móðir verður fyrir
þegar hún er útilokuð frá barninu sínu (Finzi-Dottan
o.fl., 2012). Því hefur verið haldið fram að áfallið
sem hlýst af útilokun geti í sjálfu sér viðhaldið
útilokunarferlinu, þar sem útsetta foreldrið bregst
við með aðgerðaleysi og reynir að takast á við
höfnun barnsins með því að draga sig í hlé. Barnið
mistúlkar síðan þessa hegðun sem áhugaleysi (Fidler
og Bala, 2010; Godbout og Parent, 2012; Schwartz,
2015). Útsetta foreldrið getur einnig brugðist við með
óviðunandi hætti og þar af leiðandi litið út fyrir að
vera jafn sekt og útilokunarforeldrið (Fidler og Bala,
2010; Schwartz, 2015).
Ýmsar rannsóknir hafa sýnt fram á sameiginleg
hegðunareinkenni hjá útsettum foreldrum, þar á
meðal óþolinmæði, ósveigjanleika, tilfinningalegt
afskiptaleysi, skort á hæfni, sjálfshverfa, reiði og
forðun (t.d. Baker og Andre, 2008; Friedlander og
Walters, 2010; Godbout og Parent, 2012; Johnston,
2003; Kelly og Johnston, 2001; Lamminen, 2013).
Baker og Andre (2008) undirstrikuðu mikilvægi
þess að viðurkenna sársauka og missi útsetta
foreldrisins án þess að kenna foreldrinu sjálfu um
aðstæðurnar, og á sama tíma að benda foreldrinu á
leiðir til að bæta sig í foreldrahlutverkinu.
6
GLEYMDA FORELDRIÐ: FORELDRAÚTILOKUN FRÁ SJÓNARHÓLI ÚTSETTA FORELDRISINS CLARE POUSTIE O.FL.