Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Side 17
16 Veiðimaðurinn 17 Laugardalsá – Veiðistaðalýsing
neðan Ruðninga þar sem áin kvíslast um
lítinn gróinn hólma. Í raun er þessi staður
ekki mikið meira en hola undir bakka
vestanmegin ár, rétt ofan við hólmataglið
og því er skynsamlegt að koma sér yfir
ána neðan Ruðninga, spölkorn áður en
komið er að téðum hólma. Í lænunni
að vestanverðu um miðbik hólmans er
smá spegill sem er helsti tökustaðurinn
í Hólmastreng. Einnig má finna holur við
hólma þennan þar sem laxinn leynist
stundum.
Hólmastrengur er að minni reynslu vand-
veiddur staður og gefur sjaldnast mikla
veiði, en þó má reyta þar upp einn og
einn, sé varlega að farið.
Dagmálafljót
Þegar menn hafa lokið sér af í Hólma-
streng er best að koma sér yfir ána á
nýjan leik og ganga með austurbakkanum
niður í Dagmálafljót. Dagmálafljótið er
einn af gjöfulustu veiðistöðum Laugar-
dalsár og skipar reyndar sérstakan sess
í mínum huga. Það var nefnilega í Dags-
málafljótinu sem ég missti minn fyrsta
lax, en eins og kunnugt er muna veiði-
menn yfirleitt betur eftir þeim löxum
sem þeir missa, en hinum sem þeir landa.
Hvað þá fyrsta laxinum sem menn setja
í – og missa.
Áin rennur hér í fremur grunnum streng
niður í hylinn. Hún breiðir úr sér í lygnan
damm að austanverðu en snýr sér sjálf
rétthyrnis til vesturs og beinir megin
straumi sínum spölkorn til þeirrar áttar,
en beygir síðan aftur til norðurs og tekur
stefnuna niður í Símastreng. Við hornið
þar sem áin beygir til vesturs dýpkar hún
og þar liggja venjulega efstu laxarnir í
Dagmálafljóti. Nú er um að gera að fara
varlega. Best er að byrja að kasta flugunni
á strenginn og láta hana falla niður undir
horninu á vesturbakkanum, þar sem áin
beygir. Þar framan við er bakki þar sem
laxarnir liggja gjarnan – sem og allt niður
í dýpið þar neðan við. Laxinn liggur líka
niður eftir strengnum og einnig eftir að
áin hefur beygt til vesturs og þar sýnir
hann sig oft í tignarlegum stökkum, en
helstu tökublettirnir eru í strengnum út
af horninu í vesturbakkanum og þar niður
af. Í ríflegu vatni getur lax legið niður
eftir öllu og jafnvel eftir að áin beygir á
ný til norðurs í átt að Símastreng. Þegar
líður á sumarið má stundum sjá laxa í
damminum eða bugnum að austanverðu.
Þar bylta þeir sér eða stökkva – gjarnan
forstreymis, en sjaldnast fást þeir til að
taka og eru þeir vonarpeningur sem rétt-
ast er að láta eiga sig.
Í Dagmálafljóti fer vel á því – eins og víða í
Laugardalsá – að bregða undir svokölluðu
„Portlandsbragði“ eða „gáruhnút“ sem er
betra orð yfir þá athöfn sem ýmsir kalla
„að hitsa“ og er leiðinleg enskusletta.
Gárutúpa er nafn á veiðarfæri sem á vel
við hér. Auðvelt er að gleyma sér í Dag-
málafljótinu. Þar sýnir laxinn sig gjarnan
vel og er veiðimanninum hvatning til að
skipta ört um flugu, enda skynsamlegt
því þegar sú rétta er komin á tauminn
verður stundin ógleymanleg.
Það var fremur mikið vatn í Laugardalsá þegar þessi mynd
var tekin við Dagmálafljótið. Ég veiði Dagmálafljótið venjulega
frá hinum bakkanum, en þessi veiðimaður kýs frekar að veiða
af vestari bakka árinnar. Það getur líka skilað árangri,
eins og hin myndin á síðunni er til vitnis um.
Hann er á Dagmálafljóti.