Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 18

Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 18
 18 Veiðimaðurinn 19 Laugardalsá – Veiðistaðalýsing Símastrengur Þegar Laugardalsá hefur slegið sér aftur til norðurs og rétt sig af neðan Dag- málafljóts er Símastrengur skammt undan. Símastrengur er kyrrlátur straumur þar sem áin rennur á milli gró- inna bakka, en laxinn finnur sér skjól við steina í botninum. Símastrengur er fremur grunnur og óráðlegt að ganga fram á bakkann, því þá blasir veiðimaðurinn við löxunum. Réttast er að veiða staðinn í gegn með nokkrum flugum. Ef fiskur er á staðnum verða menn hans fljótlega varir. Þess eru dæmi að veiðimenn hafi komið að Símastreng fullum af fiski og getur þá orðið handagangur í öskjunni. En sann- ast sagna eru að jafnaði gjöfulli veiði- staðir Símastreng á báðar hendur og því ástæðulaust að eyða löngum stundum þar, verði menn ekki fiskjar varir fljót- lega. Ég vil gjarnan halda því til haga að á kaflanum á milli Símastrengs og Pontu hef ég fengið laxa með því að kasta á þann hluta árinnar eftir því sem tilfinningin fyrir vatninu býður mér í brjóst. Kemur takan þá gjarnan á óvart sem er vissulega krydd í tilveruna þann daginn. Ponta Veiðistaðinn Pontu er að finna þar sem áin tekur krappa beygju til vesturs – eða vinstri þegar litið er niður ána í göngu- stefnu. Pontan dregur nafn sitt af lögun sinni. Veiðistaðurinn líkist neftóbaks- pontu, er þrengst efst en víkkar og sveigir sig til hliðar eftir því sem neðar dregur, en þrengist síðan aftur uns áin tekur stefnuna ofan í Blámýrarfljót. Þetta er smekklegt nafn á veiðistað og lýsandi fyrir lögunina. Mér er ekki kunnugt um að þetta nafn hafi verið gefið öðrum veiði- stað í laxveiðiá á Íslandi, en ég set þann fyrirvara að ég þekki þær ekki allar. Ponta er lítill hylur þar sem Laugardalsá beygir og staldrar stutt við á litlum palli, skömmu áður en hún fellur í faðm Blá- mýrafljóts. Þarna liggur fiskur jafnan og ekki síst þegar líða tekur á sumarið. Betra er að fara ekki of nærri Pontunni, ætli menn sér á annað borð að reyna við hana, en kasta flugunni varlega yfir strauminn í átt að austurlandinu og láta fluguna ber- ast að bakkanum nær. Gárutúpur fara hér mjög vel og stundum tekur laxinn alveg upp við landið. Varlega verður að fara að þessum veiðistað, enda getur fiskur verið alveg upp undir beygju, sérstaklega í góðu vatni. Liggur hann þá utan í smá kanti neðan við beygjuna. Hylurinn er fljótveiddur, en sjálfsagt er að reyna þar fáeinar flugur, þó ekki væri til annars en að hita sig upp fyrir komandi veislu í Blámýrarfljótinu – sem er þarna spotta- korn neðan við. Blámýrarfljót Hvað sem segja má um aðrar laxveiðiár á Íslandi og heimsfræga og marglofaða veiðistaði í þeim, þá er Blámýrarfljótið á heimsmælikvarða hvað fegurð og margbreytileika snertir. Að mínu mati er Blámýrarfljót – sem dregur nafn sitt af eyðibýlinu Blámýri handan ár – stórbrot- inn og margslunginn veiðistaður. Eflaust eiga einhverjir lesendur þessa pistils sér minningar frá þessum veiðistað og vænt- anlega lítur hver á silfrið sínum augum, en í mínum huga er Blámýrin veiðistaður númer eitt á Íslandi. Frá Blámýrarfljóti hafa verið sagðar ótrúlegar sögur af afla- brögðum. Indriði G. Þorsteinsson sem áður hefur verið vitnað hér til, sagði frá Finnboga heitnum Magnússyni skipstjóra frá Patreksfirði sem veiddi hundrað og fimmtán laxa í Laugardalsá á þremur dögum hér um árið – og flesta þeirra í Blámýrarfljóti. Indriði hefur hér orðið: „Hann veiddi alla laxana á þessa flugu, Teal and Black númer 12, og kappið var svo mikið að hann fékkst ekki til þess að koma upp úr ánni. Konan hans er nú líka kappsöm og hún stóð á bakkanum og færði honum hressingu. Hún óð annað veifið út til hans og dreypti á hann kaffi,“ sagði Indriði. Eftir að áin beygir út úr Pontunni fellur hún stuttan spöl til vesturs, fram af lágum stalli sem myndar fallega flúð og þaðan ofan í Blámýrarfljót. Lágur hóll er á hægri hönd þegar horft er niður eftir flúðinni – það er austan megin ár – en venjulega er staðið undir þennan lágreista hól þegar veitt er á þessum stað. Blámýrarfljótið er heilmikill dammur og djúpt eftir því. Það breiðir úr sér og til beggja handa framan við flúðina, en fellur síðan í hægum streng meðfram áður- nefndum hól til norðurs á ný. Reyndar er það þannig að framan við flúðina myndast þrír strengir í fljótinu; einn með landinu að sunnan, annar til vesturs í beinu framhaldi af flúðinni og loks til norðurs, meðfram hólnum sem áður er drepið á. Blámýrarfljót getur geymt ótrú- legan fjölda laxa, um það get ég vottað sjálfur. Aðal tökustaðirnir í hylnum eru Sjálfsagt er að reyna sig við laxana í Ruðningum þegar farið er á milli Affals og Dagmálafljóts.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.