Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Síða 20
20 Veiðimaðurinn 21 Laugardalsá – Veiðistaðalýsing
tveir; annars vegar í beinu framhaldi af
aðalstrengnum þar sem hann fer að hægja
ferðina, en þar snardýpkar hylurinn og
liggur laxinn þar í kantinum. Þarna má
segja að sé helsti tökustaðurinn. En þegar
komið er að Blámýrinni óstyggðri – að
ekki sé talað um fyrst á morgnana – þá
er strengurinn sem meðfram hólnum
rennur, þ.e. þar sem áin tekur stefnuna
til norðurs á ný, gulls ígildi. Þá er best
að koma að hylnum neðan frá, ganga
varlega upp með ánni og kasta flugunni
í strenginn með landinu og draga hana
hratt andstreymis og „strippa“ eins og
kallað er. Með þessari aðferð hef ég veitt
fjölmarga laxa í rauðabýtið, þegar laxinn
uggir ekki að sér eftir nóttina.
Ekki má heldur vanmeta litla strenginn
sem til suðurs rennur. Margir hafa sett
í lax með því að kasta yfir hann og láta
fluguna berast út í miðstrenginn og grípur
laxinn oft fluguna þegar þangað er komið.
Freistandi er að vaða út í veiðistaðinn
fram að grjótunum sem þarna standa
upp út ánni, til þess að kasta fyrir laxa
sem stökkva eða bylta sér langt út í
damminum. Betra er að láta það vera.
Tökustaðirnir eru nær. Mín reynsla er
sú að þegar ég hef sett í lax í Blámýr-
inni er affarasælast að lempa hann út af
tökustaðnum. Ég veð ána við útfallið og
þreyti fiskinn í damminum sjálfum og er
þá í rauninni aftan við laxana sem liggja
á aðal tökustöðunum í hylnum. Þannig
hef ég náð mörgum löxum í beit á þessum
stað, þótt oft hafi það ekki gengið áfalla-
laust. Má þar um kenna linnulausum
loftárásum kríu sem á sér árlega heiður
og unga austanmegin árinnar. Hefi ég
haft slæm kynni af allmörgum ættliðum
þeirrar fjölskyldu sem þarna verpir.
Skriðufljót
Úr Blámýrinni rennur áin enn til norð-
urs í átt að Ísafjarðardjúpi , beygir síðan
aftur til austurs og má sjá þar lítinn hyl
sem kallaður er Lambatangafljót. Þarna
standa grjót upp úr hylnum og gætu laxar
leynst við þau, en þarna hefi ég aldri orðið
fiskjar var, utan stöku smásilunga. Hylur-
inn er auðskyggður og komi menn ekki
auga á lax er vænlegast að skunda áfram
niður í Skriðufljót sem er einn af betri
veiðistöðum í ánni. Vert er að nefna að
Lambatangafljót gaf nokkra laxa sumarið
2018 og því er einboðið að gefa því gaum.
Í Skriðufljóti má finna laxa lengst af
sumri. Þetta er mjög skemmtilegur flugu-
veiðistaður, fiskurinn er jafnan frekar
ofarlega í hylnum þar sem klettur stendur
upp út ánni og segja má að út af honum
megi gera ráð fyrir að lenda í laxi. Hérna
má sjá tvo strauma og venjulega tekur
laxinn í straumnum nær austurbakk-
anum ofarlega. Þegar líður á sumarið
getur lax legið niður með hylnum, en þá
getur verið erfitt að fá hann til að taka.
Í Skriðufljóti er tilvalið að bregða undir
flugum eða örtúpum með gáruhnút og
þar er um að gera að veiða niður hylinn,
því lengi getur verið von á einum.
Sölvapyttur
Manngerður veiðistaður neðan við
Skriðufljótið. Ég læt hann venjulega
eiga sig enda sjaldgæft að verða fiskjar
var þar. Sölvapyttur dregur nafn sitt af
samnefndum gröfumanni sem fenginn
var til að búa til veiðistaði á þessum kafla
árinnar fyrir margt löngu. Það sagði mér
Sigurjón heitinn Samúelsson bóndi á
Hrafnabjörgum sem lengi var formaður
veiðifélagsins og tilsjónarmaður Laugar-
dalsár. Nú skundum við að næsta veiði-
stað, hinum margfræga Grímhólshyl.
Grímhólshylur
Við höldum okkur enn austan megin ár
og röltum niður í Grímhólshyl. Þangað
er spottakorn en sporlatir geta komist
langleiðina að þessum veiðistað akandi.
Það er torsótt leið og fer ekki vel á því að
troðast þangað á jeppa, þannig að hér er
mælt með göngutúr. Þetta er eini kaflinn
á helsta veiðisvæði Laugardalsár sem
krefst slíkt ökutækis, að öðrum stöðum
verður komist á jeppling eða fólksbíl. Þá
er reyndar undanskilinn troðningurinn
upp með efri hluta árinnar, þ.e. á milli
vatna.
Þar sem áin rennur ofan í Grímhólshyl
hefur hún eiginlega snúið við á leið sinni
til sjávar. Hún rennur á þessum stutta
kafla til suðausturs, eins og hún hafi nú
skipt um skoðun og vilji síður renna í
„sagði frá Finnboga heitnum Magnússyni skip-
stjóra frá Patreksfirði sem veiddi hundrað og
fimmtán laxa í Laugardalsá á þremur dögum
hér um árið – og flesta þeirra í Blámýrarfljóti“.
Laugardalsá rennur lengst af á milli gróinna bakka.
Hér er reynt við laxinn í Pontu.