Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Side 56

Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Side 56
56 Veiðimaðurinn 57 Þegar góð ráð eru dýr má reyna Gammel Dansk „Ég nýt þess að kasta flugum mínum á straumvötn sem stöðuvötn frá vori inn í haust – það er mikilvægt fyrir sálartetrið og mína andlegu vellíðan að komast reglu- lega að fallegu vatni með veiðivon. Og þótt ég hafi verið það lánsamur, eða kappsamur, gegnum árin að ná að veiða á mörgum áhugaverðum stöðum hér á landi, þá er sérstaklega gefandi og gaman að ná að snúa aftur og aftur að sömu stöðunum og kynnast þeim við ólíkar aðstæður; á ólíkum tímum veiðisumarsins, í mismun- andi veðri, breytilegu vatni, þegar fisk- urinn er ekki alltaf jafn tökuglaður. Það er nefnilega mikilvægt að upplifa hæðir sem lægðir við veiði – og hæðirnar þurfa alls ekki að þýða einhverja magnveiði. Fyrir mér þýða hæðirnar frekar að áætlun gangi upp. Það getur verið flugan sem var hnýtt veturinn áður sérstaklega fyrir þennan hyl, röð flugnanna sem ákveðið var að beita á staðnum, biðin eftir réttu birtunni sem borgaði sig. Vinirnir sem veitt er með, eða haldið til veiða með þótt menn dreifist síðan að ólíkum víkum eða strengjum, eru afar mikilvægir við upplifunina, og umfram allt finnst mér veiðimaðurinn verða að vera vonglaður. Það er lykilinn bak við þessar mikilvægu stundir í náttúrunni; aldrei óánægður, aldrei pirraður, aldrei að metast; alltaf vonglaður. Í því hugará- standi er fegurðina við vötnin að finna.“ Svo kemst að orði Einar Falur Ingólfsson, listamaður, ljósmyndari og blaðamaður. Hans föstu punktar í veiðinni undanfarin ár hafa verið Hlíðarvatn í Selvogi í maí – þrír til sex veiðidagar; Kjarrá í Borgarfirði í júní; Brunná í Öxarfirði og Húseyjarkvísl í Skagafirði í júlí; Flekkudalsá í ágúst og Vatnsdalsá í september. Að sögn Einars Fals eru allir þessir afar ólíku staðir í uppáhaldi, en jafnframt eru fjölmörg önnur ár og vötn sem falla í þann flokk. Sá listi er langur og nefnir hann því aðeins Þingvallavatn, Stóru-Laxá, Laxá í Aðaldal, Víðidalsá, Hofsá, Grímsá, Tungulæk og Tungufljót. „Ég hef veitt í tvo áratugi og allt á flugu fyrir utan nokkra sjóbirtinga á spún í fárvirðri að hausti fyrir nær tuttugu árum. Veiði annarsstaðar dettur alltaf eitthvað inn á milli og tengist gjarnan vinnu minni sem veiðiljósmyndari og skríbent.“ Að njóta kappseminnar Andstæðurnar yfirvegun og kapp þykja Einari vænlegar – í réttri blöndu. Yfirvegun getur falist í því að spyrjast fyrir og ræða við veiðimenn sem þekkja svæðið betur – það borgar sig alltaf, lesa sér til – það getur líka margborgað sig. Til að mynda með því að hafa meðferðis bækur sem mögulega hafa verið gerðar um veiðivatnið. „Yfirvegun kalla ég líka einbeitinguna við að „lesa vatnið.“ Það er eitthvað sem reynslan uppsöfnuð og samtölin við reynslumeiri og vitrari veiðimenn kenna árvökulum veiðimanni sífellt betur, að lesa árbotn í yfirborðinu, flæðið, dýpið; að geta lagt mat á hvar fiskur haldi sig. Og hvernig sé best að haga til við veiðarnar við hverjar aðstæður. Svo er það kappið, hið glaða kapp, sem er mikilvægt; gleðin yfir því að vera úti í náttúrunni og eiga þar von um veiði, og leggja eitthvað á sig til að áætlunin um töku gangi upp; að hafa fyrir veiðinni er mikilvægt. Og þar er ánægjulegt að njóta kappseminnar, en fara um leið alltaf varlega – og mikil- Vongleðin færir veiðimanni fegurðina „Ég hef veitt í tvo áratugi og allt á flugu fyrir utan nokkra sjóbirtinga á spún í fárvirðri að hausti fyrir nær tuttugu árum. “ Einar Falur Ingólfsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.