Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 58

Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 58
58 Veiðimaðurinn 59 Þegar góð ráð eru dýr má reyna Gammel Dansk vægt að muna að vera alltaf reiðubúinn að breyta til, um nálgun við veiðina, aðferð, framsetningu flugunnar; hugmyndaríki og ekki síst hreyfanleiki borgar sig nær alltaf,“ segir Einar. Brunnir fingur Vitaskuld eru aðstæður alltaf einstakar á hverjum veiðistað, segir Einar. Hann segir frá því að eitt sinn var hann ásamt vini við veiðar í góðri á á Vesturlandi; þetta var síðsumars, sól á himni alla daga, og ekki hafði rignt í einhverjar vikur, áin kom- inn niður í grjót og laxinn hafði safnast saman í dýpstu stöðum og ekki verið í töku dögum saman. Veiðibókin laug engu um það. Þeir mættu kappsamir til leiks, segir Einar enda þekktu þeir ágætlega til. „En við upplifðum það sama; deyfð- ina undir yfirborði árinnar sem rann um dalinn sem var samt jafn fagur og endranær. Við slíkar aðstæður, vatnsleysi og glæru, þekkjast ýmis ráð. Menn verða að fara enn varlegar en endranær og læð- ast að hyljum, nota grennri tauma, minni flugur, veiða andstreymis. Allt hjálpar það til,“ segir Einar en fyrir þessa ferð höfðu þeir vinirnir, vitandi að aðstæður yrðu erfiðar, haft uppi á leiðsögumönnum og veiðimönnum sem höfðu verið í öðrum ám á Vesturlandi dagana á undan og spurt þá spjörunum úr hvað hefði reynst best – ef eitthvað – við að reisa laxa. „Þegar svörin voru komin í hús fórum við að versla og bættum í boxin fleiri þungum míkrókeilum. Og við ána reyndum við vissulega ýmislegt en það eina sem virk- aði þessa daga byggði á ráðum sem við höfum safnað saman úr samtölunum: grannur og langur taumur, míkrókeilur sem var kastað þvert að fjærbakka og byrjað að hraðstrippa strax. Undir lok veiðitímans vorum við með brunna fingur af hraðstrippinu en höfðum náð að reisa allnokkra og landa sex af þeim níu löxum sem voru færðir til bókar.“ Einar segist vissulega hafa staðið heilu dagana við ágætar ár en ekkert gengið upp. En það er líka mikilvægt, finnst honum, og kennir það nauðsynlega auðmýkt gagnvart náttúrunni. „Einu sinni veiddi ég níu fisklausar vaktir í röð (þótt ég sæi marga), og vissulega var örvæntingin þá farin að setjast að mér. En vonglaður var ég kominn að þriðju ánni á þessum tíma snemma á tíundu vaktinni og landaði fjórum löxum.“ Velkominn vindur Einari finnst að ein nautnanna við að veiða í íslenskri náttúru sé að upplifa síbreytilegt veðrið – vindinn meðtalinn. Jafnvel þó stundum sé svo hvasst í fangið að manni finnist vitlaus lína vera á hjólinu, alltof létt; hún fer vart út fyrir stangarendann. Þá sýni sig að mikilvægt er að æfa köstin og geta breytt um aðferð; hér á landi sé til að mynda mikilvægt að geta kastað jafnt yfir báðar axlir, og ekki verra að geta skipt um kastaðferðir en hafa líka ráð á stöngum af mismunandi þyngd. Í rokinu geti tví- hendan bjargað miklu, ef löngunin til að koma flugunni út á hylinn er sterk. Þá sé enn og aftur mikilvægt að vera reiðubúinn að breyta til, að reyna að komast á and- stæðan bakka, nýta vindinn við veiðarnar – fara ekki alltaf að eins og síðast. „Í miklu og skoluðu vatni á það sama við, að veiðimaðurinn verður að vera reiðubú- inn að breyta til. Fara í stærri flugur og meira áberandi, beita jafnvel sökkenda, og svo vitaskuld hafa í huga að þá er fiskurinn eflaust ekki á hefðbundnum tökustöðum. Dæmi um það er veiðiferð í á á Vestur- landi sem hafði hlaupið illilega og tók kolmórauð á móti okkur, í haugarigningu svo augljóst var að þessar aðstæður myndu vara áfram. Talsvert var gengið af laxi, það vissum við félagarnir, og ákváðum að vera enn duglegri en venjulega, hafa mikla yfirferð og fara hratt yfir. Veiða nú alltaf lengst niður á breiður og brot, sleppa hefðbundnum tökustöðum en einbeita okkur líka að hægu vatni nær bökkum; vatnið var svo skolað að ekki þurftum við að óttast að styggja fisk að neinu ráði. Og við fórum í tommu og tveggja tommu langar túpur, Þingeying og Ofsabomm aðallega, túpur með gulu og grænu sem sjást vel í þessum aðstæðum. Og stóra Sunray shadow með keiluhausum. Það gekk upp. Við vorum dauðuppgefnir í lok ferðar og höfðum nær ekkert kastað á hefðbundna tökustaði í strengjum og hyljum, en lönduðum 22 löxum, ellefu hvor. Vongleðin, yfirvegunin og kappið höfðu borgað sig, og vel það. Eins og svo oft áður og síðan,“ segir Einar. „Vitaskuld eru aðstæður alltaf einstakar á hverjum veiðistað, segir Einar. Hann segir frá því að eitt sinn var hann ásamt vini við veiðar í góðri á á Vesturlandi; þetta var síðsumars, sól á himni alla daga, og ekki hafði rignt í einhverjar vikur, áin kominn niður í grjót og laxinn hafði safnast saman í dýpstu stöðum og ekki verið í töku dögum saman.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.