Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Síða 69
68 Þegar góð ráð eru dýr má reyna Gammel Dansk
„Þetta voru karlavöðlur sem ég fór með
til Lalla skógara og hann saumaði mitti
í þær því þær voru að sjálfsögðu alltof
stórar. Skórnir voru það líka. Það voru
ekki seldar kvennastærðir en nokkur
pör af ullarsokkum gerðu gæfumuninn
og komu í veg fyrir að skórnir skröltu á
fótunum,“ segir Anna og tæpir þarna á
þeim miklu breytingum sem hafa orðið
á veiðimenningunni á Íslandi – þar sem
raunverulega er gert ráð fyrir því að konur
fari með stöng. Ekki fyrir svo löngu var
það ekki sjálfsagt.
Í veiðipilsi – utan yfir vöðlurnar
„Úrval af veiðiklæðnaði fyrir konur hefur
tekið algjörum stakkaskiptum undanfarin
ár. Því er ekki síst að þakka að kvenna-
veiðihópum fjölgar ár frá ári. Í dag er t.d.
hægt að kaupa „veiðikjóla” og ég hef verið
í kvennaveiðiferðum þar sem konur hafa
verið í veiðipilsum utan yfir vöðlurnar,“
segir Anna hlægjandi.
„Eftir því sem ég fór að fara í fleiri veiði-
ferðir með konum hef ég ekki orðið vör við
að veðrið skipti svo miklu máli. Hef jú séð
eina og eina konu næstum örmagnast af
kulda og skríða næstum því uppí veiðihús
en það er undantekning,“ segir Anna.
En er það rétt sem einhverjir segja að
stemning í kvennaveiðiferðum sé önnur
en í karlaveiðiferðum? „Það er sennilega
rétt því þegar veiðikonur koma saman
skiptir „allur pakkinn” máli. Ég heyri
sjaldan konur kvarta undan fiskleysi eða
erfiðum aðstæðum til veiða. Kannski oftar
kvartað undan matnum eða rúmunum í
veiðihúsinu. Laxveiði í dag er miklu meira
en bara áin, fiskurinn og veiðibúnaðurinn.
Öll umgjörðin og félagsskapurinn skipta
jafn miklu máli til að veiðiferð verði full-
komin,“ segir Anna að lokum.
„Úrval af veiðiklæðnaði fyrir konur hefur
tekið algjörum stakkaskiptum undanfarin ár.“
www.gilbert.is
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI
Úrsmíðameistari okkar
missir aldrei einbeitinguna
Vegna annálaðrar einbeitingar, nákvæmni og 45 ára
reynslu, tryggir úrsmíðameistarinn gæði íslensku úranna.
Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmíðameistari og alþekktur
fagmaður grandskoðar hvert einstakt úr áður en það yfirgefur
verkstæði okkar.
JS úrin eru íslensk hönnun og framleiðsla, sett saman á
úrsmíðaverkstæði Gilberts, þar sem viðskiptavinir geta
komið og hitt úrsmiðina sem setja saman úrin þeirra.
Úrvalið af JS úrum hefur aldrei verið meira og ættu flestir að
geta fundið íslenskt úr við sitt hæfi en úrvalið má skoða á
vefsíðu www.gilbert.is eða www.jswatch.com.