Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 72

Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 72
72 Að kasta 139,70 metra Hercon og Islandia Sportvörugerðin þjónaði í yfir 50 ár og tvo ættliði íslenskum stangaveiðimönnum, fyrst með uppsetningu á Split Cane veiðistöngum en síðar glassfíberstöngum bæði undir nafninu Hercon og Islandia. Stangasmíði Halldórs hófst þegar hann fór snemma að lagfæra sínar eigin, en einnig stengur vina sinna síðar. Hann mun hafa vandað mjög til vinnu sinnar og góð stöng var honum metnaðarmál. Um það verða aðrir að vitna en Hercon stöng finnst vart á bökkum veiðivatna lengur, heldur er frekar um safngripi að ræða. En það er viðtal Ásgeirs Ingólfssonar við Halldór í Lesbók Morgunblaðsins á aðfangadag árið 1965 sem verður gert hér að umtalsefni. Halldór rifjar það upp í viðtalinu að hafa byrjað að veiða í Ósá við Bolungarvík, en þar slepptu menn nokkur þúsund laxaseiðum um tíma og ráku klakhús í frístundum. Hann tók sinn fyrsta lax í Laxá á Ásum árið 1942, og lýsir því að áin sú hafi á þeim árum verið lítt þekkt. Uppáhalds veiðivatn Halldórs var þó Sogið: „Ég hef veitt alls staðar í Soginu. Það er glæsileg á. Að kasta þar er stundum eins og að kasta í hafið,” segir Halldór sem þar er kominn að aðal umræðuefni viðtalsins; kasttækni Halldórs en í fyrri tíð kepptu menn í köstum. Löng köst Halldór greinir frá því að fyrstu árin sem hann veiddi í Soginu notaði hann „ellefu feta greenhart kaststöng, og amerískt sjóveiðihjól” [...] „Það þurfti að kasta langt, helzt að reyna að ná að hinum bakkanum, hvoru megin, sem staðið var. Ég gerði endurbætur á hjólinu. Penn bakelite-hjóli, og gekk mér anzi vel, eftir að ég gat stillt viðnámið. Ég átti það í mörg ár. Það var því í upphafi tilviljun, að ég fór að reyna við löng köst.” „Það hefur líklega verið um 1950, að ég fór að taka þátt í kastæfingum, og fannst mjög gaman. Kastæfingar eru nauðsynlegar fyrir veiðimenn, enda árleigur háar, og dýrt að æfa sig við veiðar. Því má líkja við mann, sem fær sér riffil með sjónauka, án þess að stilla sjónaukann, eða æfir ekki meðferð tækisins. Sú grein kastæfinga, sem nefnd hefur verið hæfnisköst — „hittiköst”, og miðar að mikilli nákvæmni, hefur náð miklum vinsældum víða á Norðurlöndum, einikum í Svíþjóð. Þar stendur gjarnan Árlega stunda kastæfingar hjá Stangaveiðifélagi Reykja- víkur á annað hundrað manns, margir byrjendur, en þó einnig vanir veiðimenn. „Það hefur líklega verið um 1950, að ég fór að taka þátt í kastæfingum, og fannst mjög gaman. Kastæfingar eru nauðsynlegar fyrir veiðimenn, enda árleigur háar, og dýrt að æfa sig við veiðar. Því má líkja við mann, sem fær sér riffil með sjónauka, án þess að stilla sjónaukann, eða æfir ekki meðferð tækisins“. Veiðimaðurinn 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.