Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Blaðsíða 77
76 Að kasta 139,70 metra
Fjaðrir rifnar fyrir maðk
Halldór kaus fluguveiði umfram annað
agn og gaman að lesa um reynslu hans
af bakkanum. Gefum honum orðið:
„Fluguveiðin er skemmtilegust, þó
að gaman sé einnig að veiða á aðrar
beitur. Ánægjulegast er að mega nota
beitu eftir vild, en flugu tek ég þó alltaf
fram yfir annað, ef veður og aðstæður
leyfa. Viðhorfin hafa svo sannarlega
breytzt. Ég minnist þess, er ég sat
með félaga mínum við Grásteinshyl, í
Langadalsá, fyrir mörgum árum. Við
tókum upp úr pússi okkar tvær eða þrjár
flugur, sem okkur höfðu verið gefnar.
Þá rifum við fjaðrirnar af þeim, til að
geta beitt maðk, en vorum fátækir af
önglum. Það er langt um liðið síðan”.
Þegar Halldór var spurður um fluguval
hafði hann þetta að segja: „Ég held, að
það sé lítil regla um flugur og veður. Þó
hallast ég heldur að ljósum flugum í björtu
veðri, en önnur heildarregla er ekki síður
sú, að þekkja, hvenær nota skal litlar flugur
og stórar. Stærðin er meira atriði. Ég nota
yfirleitt litlar tvíkrækjur, frekar en stórar
einkrækjur. Þá verð ég að minnast á eitt
atriði um flugur. Ég tel, að margar erlendar
flugur séu of mikið klæddar, og held, að við
votfluguveiði sé bezt að nota léttklæddar
flugur, allt niður í „Low-Water” flugur, sem
miða að því að veiða á litlar flugur, með
stórum öngli. Undangengin ár hef ég mikið
veitt á flotflugulínu, og dreg hana stundum
svo hægt, að liggur við að nálgist „greased
line fishing”. Til eru þeir, sem stundum
renna flugu eins og maðki,” sagði Halldór.
Að breyta laxastofni
Í samhengi við álitamál sem hefur verið
áberandi síðastliðin ár, áhrif netaveiði á
laxastofna hafði Halldór þetta að segja:
„Ég tel varla mögulegt að eyðileggja laxár
með stangaveiði, þótt til séu einstakar ár,
þar sem lax tekur ótrúlega vel miðað við
aðrar ár. Hins vegar er vitað, að bann við
sjóveiði á laxi er ekki haldið. Þá er lítill
gaumur gefinn að netaveiði á sumum
svæðum, og það þótt rúmlega níutíu af
hundraði alls afla svæðisins komi í net. Það
veiðast árlega um eða yfir 10.000 laxar á
Ölfusársvæðinu í net, enda vitað, að laxinn
dvelst mikið í jökulvatninu, áður en hann
heldur upp í bergvatnsárnar. Lax, sem
er á leið í Laxá í Hreppum, á langa leið
fyrir höndum, og verður að fara fram hjá
mörgum torfærum. Ég er þeirrar skoðunar,
að netaveiðin á Ölfusársvæðinu, í
jökulvatninu, hafi verið og sé að eðlisbreyta
stofninum. Það er furðulegt, hve lítið
gengur af laxi í bergvatnsárnar. í Brúará
og Laxá var löngum mikið af laxi, en nú
er þar allt laxlaust, að kalla. Ég er þeirrar
skoðunar, að aðeins allra fyrsti hluti fyrstu
göngu laxins af bergvatnsárstofninum
Sumum veiðimönnum hættir til að miða veiðiánægju við
aflamagn, og fara helzt ekki til veiða, nema þeir hafi svo til
vissu fyrir því, að aflinn verði mikill.
w
„Góður veiðimaður fer til veiða með það fyrir augum
að hafa ánægju af ferðinni, ekki til að veiða sem mest.
Þó tel ég það ekki ósportlegt að veiða mikið, þá sjald-
an veiðigyðjan reynist hliðholl. Sumum veiðimönnum
hættir til að miða veiðiánægju við aflamagn, og fara
helzt ekki til veiða, nema þeir hafi svo til vissu fyrir því,
að aflinn verði mikill. Góður félagsandi er fyrir mestu,
og þeim mönnum, sem ekki hafa ánægju af vefðiferð,
þar sem fallegt er veiðivatn, gott veður og góður félags-
skapur er fyrir hendi, enda þótt lítið veiðist, myndi
ég ráðleggja að fást ekki við stangaveiði”
Veiðimaðurinn 77