Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Side 80
L innulaust dorg er síður en svo
til fyrirmyndar en þó má ekki
gleyma þeim almæltu sannindum
að það veiðist best á blautar flugur. Í
lögum klúbbsins eru háleit markmið um
að koma á fót safni fyrir veiðimenn með
veiðibókum og kvikmyndum ásamt því
að tengja innlenda og erlenda veiðimenn
til að efla fræðslu. Inngöngugjald var
kr. 50 sem var að sjálfsögðu endurgreitt
ef inngöngubeiðni var hafnað. Félagið
var stofnað til að efna til kastmóta 3-4
sinnum á ári þar sem keppt væri eftir
alþjóðlegum reglum og félagsmenn
kepptu einnig erlendis. Kannski tíma-
bært að taka upp þráðinn og blása til kast-
móts meðal stangveiðimanna þegar sól
tekur að hækka á lofti?
Albert Erlingsson, kaupmaður í Veiði-
manninnum, var formaður klúbbsins
sem fór kröftuglega af stað en í honum
voru um 40 félagar á fyrstu árunum.
Í Morgunblaðinu 1958 er m.a. greint
frá heimsókn Myron Gregory, forseta
Alþjóðlega kastsambandsins, og sérs-
taklega tekið fram að hann kæmi
til landsins í f lugvél ásamt ásamt
heimsmeistaranum í fluguköstum, Joan
Tarantino, sem Albert hafði séð keppa í
Kiel. Heimsmeistarinn sýndi m.a. listir
sínar við lónið ofan Árbæjarstíflu og efnt
var til fræðslufunda til að efla áhuga á
íþróttinni sem fór vaxandi.
„Fullvíst er að stangaveiði er sú
sumaríþrótt sem einna mestra vinsælda
á að fagna hér á landi. Áhugi fólks á öllum
aldri á þessari hollu og skemmtilegu íþrótt
hefur farið mjög vaxandi á undanförnum
árum. Um hverja helgi leggja hundruð
manna leið sína út úr bænum með stöng,
að einhverju fallegu vatni eða á og eyða
þar sunnudeginum. Þá er það fastur liður
í sumarleyfi mikils fjölda að renna eftir
laxi eða silungi í fleiri eða færri daga, allt
eftir efnum og ástæðum.“
Og efist lesendur um að f luguköst
teljist til íþrótta þá var fjallað um
kastmót Kastlúbbsins á íþróttasíðum
Morgunblaðsins og færi vel á því að sú
umfjöllun væri tekin upp á ný!
Kastklúbbur Stangaveiðimanna
Reykjavíkur
Veiðimaðurinn rakst á lög Kastklúbbs Stangaveiðimanna með stóru essi
frá árinu 1956 og eru þau skemmtileg lesning. Í þeim segir m.a.:
1. gr.
Nafn félagsins er Kastklúbbur Stangaveiðimanna Reykjavíkur.
Í lögum um tilgang félagsins segir m.a.
2. gr.
a) Að safna saman stangaveiðimönnum,sem þekktir eru að sportlegum
aðferðum við veiðar, góðri umgengni umveiðistaði og hafa áhuga á að efla
veiðimenningu meðal þeirra, er iðkasem íþrótt lax- og silungsveiðar á stöng.
b) Að vinna á móti öllum ósportlegum veiðiaðferðum meðal
stangaveiðimanna, svo sem linnulausum dorgveiðum og öðru slíku,
sem ekki á skylt við sportveiðar.
c) Að efla áhuga fyrir köstum og kastæfingum og vinna
að sem bestri aðstöðu við iðkun þessarar íþróttar.
80 Veiðimaðurinn 81 Að kasta 139,70 metra