Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Blaðsíða 93
Fólki var brugðið að morgni laugardagins 7. júlí
þegar í ljós koma að ein stærsta skriða sem fallið
hefur frá landnámi Íslands hafði ætt niður hlíðar
Fagradalsfjalls og þverað farveg Hítarár, einnar
bestu laxveiðiár landsins.
M ikil mildi var að skriðan féll
þegar veiðimenn voru ekki
á bakkanum en miðað við
ógnarhraða hennar hefðu þeir ekki náð
að bjarga lífi sínu. Ísland er land í mótun
en drunur höfðu heyrst frá fjallinu dagana
áður en það hljóp fram.
Þessar fordæmalausu náttúruhamfarir
breyttu Hítará á einni nóttu. Einar Raf-
nsson, ljósmyndari, sem lesendur Veiði-
mannsins þekkja af góðu einu, flaug yfir
Fagradalsfjall ári áður en skriðan féll. Ekki
er laust við að það sjáist móta vel fyrir
henni þá, að fjallið hafi verið byrjað að
rumska, en gengdarlaus úrkoma virðist
hafa hrundið henni af stað. Það er af sem
áður var.
Myndir Einars tala sínu máli en margir
góðir veiðistaðir voru á augabragði fylltir
af möl og drullu. Hafrannsóknarstofnun
birti mat á áhrifum skriðunnar á vef sínum
en sumarið 2017 fór fram ítarleg athugun
á framleiðslugetu vatnasvæðisins með
mati á búsvæðum árinnar. „Hjálpar sú
vinna mjög við að meta líkleg áhrif af
berghlaupinu á lífríki árinnar,“ sagði á
vef stofnunarinnar sem lýsti atburðum
svona þremur dögum eftir hrunið.
„Bergfyllan fyllti farveg Hítarár á rúm-
lega kílómeters kafla skammt ofan við
Kattarfoss. Við þennan atburð stífl-
aðist farvegur árinnar alveg með þeim
afleiðingum að mjög lítið rennsli er í far-
veginum frá skriðufallinu að ármótum
Tálma hliðarár Hítarár. Ofan skriðunnar fór
fljótlega að myndast lón í farvegi Hítarár
og sunnudaginn 8. júlí fór áin að renna
inn í nýjan farveg framhjá skriðunni og
sameinast hliðaránni Tálma nálægt upp-
tökum árinnar. Ljóst er að ásýnd Hítarár
á Mýrum er gjörbreytt eftir þennan for-
dæmalausa atburð og á næstu vikum og
mánuðum mun koma nánar í ljós áhrif
á lífríki, fiskframleiðslu og veiði í ánni.“
Stjórn SVFR hvatti veiðimenn í kjölfarið til
að veiða og sleppa til að hlífa stofni árinnar
en veiði var ágæt þrátt fyrir áfallið. Mikið
Eftir hrun, 2018
Fyrir hrun, 2017
92 Hítará kvaddi með hvelli