Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Side 11

Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Side 11
skýringa sem nefndar hafa verið eru að umferð hafi aukist við árnar, byggð hefur færst nær ánum, mannvirkjum á ársvæðinu hefur fjölgað og enn mætti tína til skipulagsmál og ljósmengun. Sumir telja aukinni umferð við árnar um að kenna, þróun byggðar, rennslisbreytingar vegna virkjunar, vatnstöku, landfyllingar, skipulagsmál, ljósmengun svo fátt eitt sé nefnt. Aðrir benda á hrunið sem varð í ánni þegar kýlaveiki kom upp í henni um miðjan 10. áratug síðustu aldar, enda sýna gögn að stofninn hefur ekki náð sér á strik eftir það áfall. Þess fyrir utan eru það ýmis umhverfisskilyrði sem hafa þar einnig áhrif, eins og vatnshiti og lífs- skilyrði í sjó. Þá verður ekki litið framhjá því, að veiðihlutfallið í ánum hefur farið hækkandi og mikill meirihluti veiddra laxa hefur verið drepinn. Slíkt skiptir því meira máli sem stofninn er minni. Hlutfall slepptra laxa í Elliðaánum hefur auk þess verið lægri en gerist í flestum laxveiðiám á síðustu árum. Elliðaárnar hafa verið heimavöllur Stangaveiðifélags Reykjavíkur frá stofnun þess. Félagið var m.a. stofnað í þeim til- gangi til að standa vörð um árnar, vernda og tryggja viðgang fiskstofna í þeim. Markmið SVFR var sannarlega líka að efla hróður stangaveiðinnar, hvetja til hóf- semi í veiði og stuðla að því að veiðimenn virði settar veiðireglur og umgangist náttúruna af virðingu og tillitssemi. Það höfum við gert með stolti í 80 ár. Með hliðsjón af framangreindu má vera ljóst að SVFR getur ekki setið hjá þegar hætta steðjar að hinum einstaka laxastofni Elliðaánna. Það er ljóst að SVFR hefur ekki stjórn á mikilvægum áhrifaþáttum í þessu tilliti, hvorki umferð um Dalinn, skipulagsmálum né náttúru- legum sveiflum og áföllum í lífríkinu. Hins vegar getur SVFR lagt sitt af mörkum með því að minnka veiðiálagið í ánum og það hefur stjórn félagsins ákveðið að gera. Veiðifyrirkomulagi í Elliðaánum verður því breytt, frá og með næsta sumri. Það er stór ákvörðun að breyta hátt í aldargamalli veiðihefð og því hefur sú ákvörðun verið tekinn af vel ígrunduðu máli, þar sem stjórnin naut liðsinnis árnefndar Elliðaánna, vísindamanna og ráðfærði sig við fulltrúaráð félagsins. Með hliðsjón af núverandi stöðu laxastofns Elliðaánna og þeim vísindalegu ráð- leggingum sem stjórn félagsins hefur aflað hefur verið tekin sú ákvörðun að sleppa skuli öllum veiddum laxi. Frá og með næsta sumri verður því einungis heimilt að veiða á flugu í Elliðaánum og öllum fiski skal sleppt. Með því sýnir félagið ábyrgð og stendur með náttúr- unni, á 80 ára afmæli félagsins. Stjórn félagsins er samstíga í þessu mikilvæga máli, er sannfærð um nauðsyn þessarar ákvörðunar og lítur svo á, að með henni fái Elliðaárnar sjálfar sig í afmælisgjöf. Margir munu fagna þessari breytingu, en aðrir telja of langt gengið. Róttækar breytingar kalla eðli málsins samkvæmt á viðbrögð þar sem skoðanir eru skiptar. Hins vegar er þessi ákvörðun tekin með hagsmuni ánna í huga sem og framtíðar- hagsmuni félagsins. Við viljum stuðla að því að komandi kynslóðir fá ennfremur að upplifa þá einstöku upplifun sem það er að veiða á bökkum Elliðaánna. Stjórn félagsins treystir því að félags- menn sýni þessari ákvörðun skilning og standi saman að því að vernda heimavöll félagsins. Megi laxinn í Elliðaánum lifa! Virðingarfyllst, stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Jón Þór Ólason Rögnvaldur Örn Jónsson Ágústa Katrín Guðmundsdóttir Hrannar Pétursson Hörður Birgir Hafsteinsson Ólafur Finnbogason Ragnheiður Thorsteinsson Með hliðsjón af framangreindu má vera ljóst að SVFR getur ekki setið hjá þegar hætta steðjar að hinum einstaka laxastofni Elliðaánna. Það er stór ákvörðun að breyta hátt í aldargamalli veiðihefð og því hefur sú ákvörðun verið tekinn af vel ígrunduðu máli, þar sem stjórnin naut liðsinnis árnefndar Elliðaánna, vís- indamanna og ráðfærði sig við fulltrúaráð félagsins. 10 Veiðimaðurinn 11 Elliðaárnar fá sjálfar sig í afmælisgjöf
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.