Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Blaðsíða 15
14 Veiðimaðurinn 15 Fréttir
Leirvogsá á ný til SVFR
Leirvogsá er komin á ný til Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur en samningur þess efnis
var undirritaður á haustdögum. Þetta
eru gleðifréttir fyrir velunnara árinnar.
Meðalveiði Leirvogsár síðustu tíu ára er
432 laxar en þar hafa margir átt góðar
stundir. Þessa fjölbreyttu og skemmtilegu
á verður því að finna í félagsúthlutun
SVFR sem fer fram í byrjun nýs árs. Því er
ekki seinna vænna en að hefja skipulagn-
ingu komandi veiðisumars og festa sér
spennandi veiðidaga.
Þínar síður
Hver kannast ekki við það að hafa keypt
veiðileyfi um miðjan vetur en muna ekki
nákvæmlega eftir því þegar sumarið
skellur á um hvaða daga var að ræða?
Símatal á skrifstofu SVFR eða heimsókn
í Elliðaárdalinn hefur greitt úr óvissunni
til þessa en stundum hafa veiðimenn lent
í því að mæta of seint til leiks og missa af
dýrmætum veiðidögum. Það er ótækt en
á vef SVFR á síðunum þínum, geta félags-
menn fundið allar upplýsingar um keypt
veiðileyfi og stöðu viðskiptareiknings
viðkomandi.
Það er rík hefð margra veiðimanna að
velja sér veiðidaga næsta sumars yfir jól
og áramót og sækja um þá á vef SVFR.
Þegar úthlutun liggur fyrir birtist niður-
staðan á þínum síðum á vef SVFR en til að
sjá þær er smellt á innskráning á forsíðu
vefs SVFR. Vonandi fá flestir þau veiði-
leyfi sem þeir óska eftir á komandi sumri.
Fjörlegt afmælisár
SVFR fagnar því á þessu ári að 80 ár eru
liðin frá stofnun félagsins þann 17. maí
árið 1939. Fjölmargt hefur verið gert til
að minnast tímamótanna og boðið hefur
verið upp á fjölda viðburða á afmælis-
árinu. Vorhátíð félagsins var haldin á
afmælisdeginum á heimavelli félagsins
í Elliðaárdal. Fjölmargir mættu og nutu
skemmtilegrar dagskrár og tóku þátt í
happdrætti þar sem m.a. mátti vinna
veiðileyfi í Elliðaárnar á opnunardegi
ánna. Vorhátíðin hefur fest sig í sessi og
ætti enginn veiðimaður að láta hana fram
hjá sér fara. Daginn eftir var árshátíð
félagsins endurvakin á Hótel Sögu þar
sem margir áttu góðar stundir.
Einstök kvikmynd sem frumsýnd var
árið 1949 á 10 ára afmæli SVFR var endur-
gerð og sýnd á afmælisárinu. Á þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní var svo boðið upp á
kastkennslu við Tjörnina í Reykjavík og
sennilega í fyrsta skipti sem stangveiði er
stunduð í miðborginni. Fjölmargir, bæði
ungir sem aldnir, tóku þátt og reyndu sig
við að skjóta línum sínum sem lengst.
Boðið var upp á gönguferðir um ársvæði
félagsins undir leiðsögn og félagið fram-
leiddi fjölda afmælisvara sem kaupa má
á skrifstofu og vef félagsins og henta vel
í jólapakka veiðimanna. Ef einhver vill
gera sérstaklega vel við veiðimanninn í
fjölskyldunni má bæta við gjafakorti upp
í veiðileyfi komandi sumars.
Fluguveiðiskóli í Langá
Stangaveiðifélag Reykjavíkur endurvakti
síðastliðið sumar Fluguveiðiskólann við
Langá. Hann var starfræktur um árabil
og naut mikilla vinsælda. Vel tókst til og
verður leikurinn endurtekinn sumarið
2020. Reyndir leiðsögumenn og kast-
kennarar kenna veiðimönnum réttu
tökin.
Skólinn hentar jafnt fyrir lengra komna
sem byrjendur í fluguveiði. Farið er yfir
grunninn í fluguköstum, veiðiaðferðir,
tækni og nálgun við veiðistaði. Helstu
hnútar verða kynntir til leiks og leiðbein-
ingar veittar um val á flugum við ólíkar
aðstæður og veiðistaði. Einnig verða
kennd grunnatriði í fluguhnýtingum.
Hægt er að tryggja sér sæti í Fluguveiði-
skólanum á skrifstofu SVFR.
Á tveimur sólarhringum verða nemendur
margs vísari auk þess að njóta fallegrar
náttúru á Langárbökkum og samfélags
veiðimanna. Innifalið í námskeiðsgjaldi
er gisting í Langárbyrgi og fullt fæði. Þarft
þú að bæta tæknina fyrir næsta sumar?
SVFR-FRÉTTIR
Leirvogsá er fjölbreytt og skemmtileg laxveiðiá. Þar hafa margir félagsmenn SVFR átt góðar stundir og fagnaðarefni
að áin sé komin aftur til félagsins.