Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Page 26

Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Page 26
Það sem við erum að leita að eru ólgur, gjótur, holur, þrengingar, rásir eða eitt- hvað sem breytir straumlaginu í ánni. Allt sem er öðruvísi getur verið tökustaður. Stundum eru hyljir það stórir að fiskur getur tekið hvar sem er, en samt hafa slíkir hyljir bletti þar sem fiskurinn er viljugri að taka en annars staðar. Að öllum líkindum er þetta atriðið sem skilur á milli manna um árangur. Þetta er það sem reynslan ein getur kennt manni – og maður er alltaf að læra. Ég hef hvergi séð tæmandi lýsingu á íslensku á því hvernig lesa eigi vatn, enda held ég að það sé ógjörningur að gera slíkt. Eitt getum við verið 100% viss um og það er að fisk- urinn er í vatninu, en hvar og hvers vegna hér en ekki þar; þar liggur reynslan. Að minnsta kosti er nokkuð ljóst að sumir eru betri en aðrir í því að lesa vatnið. Stundum er hægt að sjá fiskinn jafnvel þó að veiðimaðurinn standi ekki uppi á hól eða hafi yfirsýn yfir staðinn, heldur sjást þeir þegar verið er að veiða sig niður staðinn. Stundum er hreinlega hægt að sjá hvaða fiskar munu taka og hverjir ekki. Straumurinn eða straumólgurnar mynda stundum spegla í yfirborðinu og hægt er að horfa í gegnum þá og sjá allt sem er undir þeim. Við slíkar aðstæður er best að koma sér fyrir, standa kyrr og sæta svo lagi á að koma sér nær staðnum til að sjá betur. Hreyfa sig þegar spegl- arnir eru farnir framhjá, fylgjast vel með straumnum og stoppa þegar næsti speg- ill myndast. Horfa í gegnum spegilinn og fylgja honum eftir með augunum og rýna í vatnið og leita. Allir hyljir hafa sín sérkenni, mismunandi liti í botn- inum og umhverfinu og stundum eru Fiskur leitast við að liggja þar sem straumur er jafn og hann hefur sem minnst fyrir lífinu. Dæmigerður fosshylur, myndin sýnir legu fiska á mismunandi stöðum. Fiskur getur legið undir hvítfyssinu, djúpt niður á botni, upp hallandann eða á næsta palli fyrir neðan fosshylinn sjálfan. frávikin fiskur. Við erum að leita að skuggum og einhverju sem passar ekki inn í umhverfið. Í grænum hyljum leitum við að einhverju sem er ílangt og varpar skugga, í svörtum hyljum kíkjum við eftir einhverju sem er ljósara og stingur í stúf við umhverfið. Fiskur sem er nýkominn inn í hylinn er órólegri en þeir sem eru þar fyrir og því er hann líklegri en hinir til að taka. Hann syndir um og leitar að stað til að hvílast, allt atferli hans gefur til kynna að hann sé líklegri til að taka en fiskarnir sem fyrir voru í hylnum. Fiskurinn á sér aðeins einn óvin þegar hann er kominn í ána og það er skuggi. Því er besta leiðin til að fæla fiskinn að varpa skugga á þann stað sem hann liggur. Flestar ár á Íslandi eru með hyl sem byrjar á Brú-eitthvað, Síma-eitt- hvað og Raf-eitthvað og það helgast af því að fiskurinn fer ekki yfir skuggann heldur bíður færis á að fara þegar ljósið eða birtan breytist þannig að skugginn hverfur og/eða það kemur að honum ein- hver ógn sem hann flýr undan. Það er mun vandasamara en maður skyldi ætla að horfa af brúm og það verður að fara varlega svo að fiskurinn sjái ekki viðkomandi, því að þegar verið er að skyggna brúarhylji og viðkomandi sér fiskinn er nánast öruggt að hann hefur séð veiðimanninn. 26 Veiðimaðurinn 27 Ný veiðibók
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.