Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Blaðsíða 87
„Fyrst fannst mér þetta mjög skrítið. Svo hélt ég að
ég hefði misst hann. Það var svona í þrjár sekúndur,
en svo náði ég honum upp í bátinn.“
Alexander (11 ára)
Þeir sem eldri eru vilja oft greina það sér-
staklega af hverju menn veiða á stöng.
Ræða þetta í löngu máli án þess að ná
niðurstöðu. En hvernig sjá þeir bræður
þennan mikla leyndardóm sem veiðin er.
Hvað er svona gaman við það að veiða?
Yngri bróðirinn, hann Alexander, verður
fyrri til svars.
„Að fá fisk“.
Það rifjast upp fyrir þeim sem spyr að þetta
er ekkert flókið.
„Og svo bara að kasta og sjá fiskinn
stökkva,“ segir Thomas Ari og þeir bræður
bæta við að þeir hafi fengið fallegar flugust-
angir að gjöf frá Veiðikortinu.
Ingimundur tók nefnilega svo góðar
myndir af þeim bræðrum við vatnið að
hann óskaði eftir því að fá að nota þær á
næsta Veiðikort þegar það fer í prentun.
Stangirnar eru því með réttu vinnulaun
þeirra bræðra.
Stangirnar koma sér vel, því þeim finnst
báðum skemmtilegra að veiða á flugu
heldur en kaststöngina, þó litlu muni.
Spurðir hvort þeir ætli að einbeita sér að
fluguveiðum eingöngu þá hallast þeir að
því báðir að flugan verði mest notuð. Þrátt
Alexander og Thomas Ari með bleikjurnar góðu úr Úlfljótsvatni – gleðin eftir þennan veiðidag er ósvikin.
fyrir ungan aldur er mat þeirra hárrétt -
stundum eru aðstæður þannig að gott er
að grípa í að veiða á spón eða maðk.
Þeir eiga líka sjóð af flugum frá langafa
sínum. En eiga þeir sér uppáhalds flugur?
„Nei, eiginlega ekki. Það eru bara allar
flugur góðar ef maður veiðir eitthvað á
þær,“ segir Thomas Ari. Þar hafið þið það.
Langá er skotmarkið Þó að þeim bræðrum
þyki frábærlega gaman að veiða silung þá
er framtíðarsýn þeirra skýr. Þeir vilja veiða
lax.„Ég er að safna mér fyrir veiðileyfi í
einhverja á,“ segir Tómar Ari.
Og hvert langar ykkur að fara?
„Langá og Víðidalsá - maður sér þetta
allt í Sporðaköstum, sko,“ bætir hann við
og Alexander tekur undir og þeir bræður
staðfesta að þeir liggja yfir veiðimyndum.
Sporðaköst eru í uppáhaldi. Veiðikofinn
líka. Margt gagnlegt segjast þeir hafa
fundið á YouTube.
Mamma þeirra staðfestir jafnframt að
synir hennar liggja yfir landakortum til
að athuga með legu helstu laxveiðiánna.
Þeir þurfa staðsetningu þeirra - enda gæti
það flækt málið fyrir þeim ef um langan
veg er að fara. Elliðaárnar eru líka skammt
undan og Alexander bendir á að þangað
hafi þeir farið einu sinni.
„Þá fengum við og pabbi samtals fimm
silunga. En þeir voru ekkert svo stórir,“
segir hann.„Okkur langar að fá lax,“ segir
86 Veiðimaðurinn 87 Veiðidellan úr lausu lofti gripin