Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Qupperneq 92
V eiðikappanum verður
ek k i lýst í sm á at-
riðum hér en hann þarf
ekki að kynna fyrir
landsmönnum. Ötull bar-
áttumaður fyrir sjálfstæði Íslendinga,
heimsfrægur glímukappi og athafna-
maður sem reisti og rak Hótel Borg. Síð-
ast en ekki síst var hann öflugur veiði-
maður bæði með stöng og byssu en á
árunum upp úr 1930 hóf hann að sækja
í Borgarfjarðarárnar og vestur á Mýrar.
Jóhannes byrjaði að kasta spúni en komst
fljótt upp á lagið að kasta flugu. Jóhannes
hafði smekk fyrir góðum veiðibúnaði.
Frásögn SVFR byggir m.a. á bók Stefáns
Jónssonar, Lífsgleði á tréfæti, en Stefán
var einn af veiðifélögum Jóhannesar.
„Hann átti bestu stengur, hjól og línur
sem völ var á og sérpantaði allt frá Hardy.
Einkanlega voru flugulínurnar hans
athyglisverðar. Allt voru það silkilínur
með ýmsu sniði. Sumar voru mislitar,
þanig að veiðimaðurinn gat ráðið af
litnum hversu langt hann hefði úti. Aðrar
voru blandaðar einhverjum efnum sem
áttu að tempra sökkhraðann og sennilega
hafa þeir eiginleikar flugulínanna átt sinn
þátt í fengsæld hans, sem stundum þótti
yfirnáttúruleg.“
Jóhannes tók ár á leigu, m.a. Hítará og
Norðurá sem hann hafði á leigu að hluta.
Þar byrjaði hann veiðisumarið og flutti
sig svo upp á Mýrar. Fleiri svæði leigði
hann að hluta m.a. Þverá og Kjarará og
segja má að hann hafi lifað draumalífi
veiðimannsins. Hvítá við Svarthöfða var
fastur viðkomustaður, Grímsá, Langá
og einnig Hofsá. Ferðalagið austur tók
nokkra daga og gist var í tjöldum við ána.
Jóhannes er einn af fjömörgum veiði‑
mönnum sem koma fram í kvikmyndinni
Við straumana sem framleidd var á 10 ára
afmæli SVFR 1949 og var sýnd í vor á 80
ára afmæli félagsins.
Seinni kona Jóhannesar, Brynhildur Sig‑
urðardóttir, var áhugasöm stangveiði‑
kona og slyngur veiðimaður. „Engin veði‑
ferð fannst honum góð nema Brynhildur
væri með og til hennar orti hann á gamals
aldri kvæðið um konuna við ána, sem
hefst svo:
„Er fyllt var að barmi mín kvalanna krús,
sem kynngin og erillin lána.
Þá byggði ég hvíldar og kærleikans hús,
á klettunum frammi við ána.
Vinirnir farnir og ferillinn minn,
farið að styttast í ljána.
Eftir er konan með kærleikann sinn,
í kofanum frammi við ána.“
Þarna vísar Jóhannes m.a. í veiðihúsið
Lund við Hítará en það var byggt eftir
æskuheimili hans á Oddeyrinni á Akur‑
eyri. Hann var mikill safnari og átti
stærsta og fallegasta flugusafn á landinu
og þótt víðar væri leitað, 130 box.
„Í Lundi var hann með sérstakt herbergi
þar sem flugunum var raðað upp í kassa
eftir kassa. Hann átti klassískar enskar
veiðiflugur í öllum stærðum, tugi ef ekki
hundruð af hverri tegund. Sumar þeirra
höfðu verið hnýttar í Lundúnum löngu
áður en hann byrjaði sjálfur að veiða.“
„Í Lundi var hann með sérstakt herbergi þar sem
flugunum var raðað upp í kassa eftir kassa. Hann
átti klassískar enskar veiðiflugur í öllum stærðum,
tugi ef ekki hundruð af hverri tegund. Sumar þeirra
höfðu verið hnýttar í Lundúnum löngu áður en
hann byrjaði sjálfur að veiða.“
Lundur við Hítará. Jóhannes lét reisa veiðihúsið
en æskuheimili hans á Akureyri var fyrirmyndin.
92 Jóhannes á Borg