FLE blaðið - 01.01.2021, Page 2

FLE blaðið - 01.01.2021, Page 2
ÚTG: FÉLAG LÖGGILTRA ENDURSKOÐENDA © Aðsendar greinar í blaðinu eru á ábyrgð höfunda en að öðru leyti er útgáfa blaðsins á ábyrgð ritnefndar FLE. FLE blaðið má ekki afrita með neinum hætti, að hluta til eða í heild, þar með talið tölvutækt form, án skriflegs leyfis höfundarrétthafa. VINNSLA BLAÐSINS RITNEFND FLE: Herbert Baldursson, formaður, Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, Kjartan Arnfinnsson, Ingibjörg Ester Ármannsdóttir Prentun: Litróf Umsjón: Hrafnhildur Hreinsdóttir Janúar 2021, 43. árgangur 1. tölublað SKRIFSTOFA FLE, HELSTU UPPLÝSINGAR Skrifstofa FLE, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík, er opin virka daga kl. 9-15 Sími: 568 8118, Tölvupóstfang: fle@fle.is, Vefsíða FLE: www.fle.is Sigurður B. Arnþórsson, framkvæmdastjóri sigurdur@fle.is Hrafnhildur Hreinsdóttir, skrifstofustjóri fle@fle.is FLE blaðið hefur verið fastur þáttur í tilveru endurskoð- enda í tugi ára. Einu sinni á ári eru skrifaðar greinar um fagleg málefni sem skipta okkur endurskoðendur máli, fréttir af innra starfinu og fleira gagnlegt og skemmti- legt. Blað eins og FLE blaðið var bráðnauðsynlegt þegar byrjað var að gefa það út og áfram í gegn um áratugina, því umfjöllun í rituðu máli um okkar mál var að skornum skammti og það gat verið erfitt að fylgjast með nýjungum og breytingum. Síðan kom Internetið og aðgengi að ýmsu efni gjör- breyttist. Nú er hægt að vafra um netið og sækja sér ýmsan fróðleik, um fagið okkar og annað, alls staðar úr heiminum. En efni á íslensku, okkar ylhýra, það er áfram af skornum skammti, auðvitað má segja, þar sem málsvæði okkar er svo lítið. En einmitt vegna þessa þá gegnir okkar ágæta félag og þetta frábæra blað okkar ótrúlegu hlutverki, með því að gangast fyrir að skrifaðar eru vandaðar greinar um mikilvægt efni fyrir okkur endurskoðendur, greinar sem annars væru ekki skrifaðar á íslensku. Á FLE vefnum er safnað saman efni, úr FLE blaðinu, af námskeiðum og af öðrum vettvangi. Efni um fagið okkar, á íslensku. Hvað sem segja má um hitt tungu- málið okkar, enskuna, þá er íslenska alltaf best. Nú má spyrja hvort ekki sé ástæða til hætta að gefa út blaðið á prenti, er ekki kominn tími á að hafa þetta aðeins vefútgáfu? Það er ekki ólíklegt að það fari að líða að því, en ekki alveg strax. Hér kemur til þetta margfræga kynslóðabil, bil sem þarf að gefa tíma til að líða hjá, því enn eru margir í okkar stétt sem líður betur með að höndla pappírinn en lyklaborðið. Enda eðlilegt, endurskoðendur eru allt frá því að vera á þrítugsaldri yfir á áttræðisaldurinn. Og hver veit nema að eftir nokk- ur ár þá gangi prentað mál í endurnýjun lífdaga. Er ekki komið í tísku að hlusta á tónlist af vínilplötum, eitthvað sem varð úrelt fyrir 40 árum? En blað þessa árs er, eins og alltaf, stútfullt af áhuga- verðu og skemmtilegu efni. Ég hvet alla til að fletta í gegnum blaðið, hér eiga allir að geta fundið sér eitt- hvað við sitt hæfi. Janúar 2021 Herbert Baldursson, Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, Kjartan Arnfinnsson og Ingibjörg Ester Ármannsdóttir FYLGT ÚR HLAÐI

x

FLE blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.