FLE blaðið - 01.01.2021, Qupperneq 7

FLE blaðið - 01.01.2021, Qupperneq 7
7FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021 á hinum Norðurlöndunum bendir til þess að bæði í Danmörku og Svíþjóð séu um 30% lögaðila með annað reikningsár en almanaksárið, auk þess eru vísbendingar um að lögaðilar séu hlutfallslega færri á hinum Norðurlöndunum. Mikilvægt er að horfa til framtíðar og velta fyrir sér gildi starfa okkar og hvaða upplýsingar það eru sem markaðurinn telur mikilvægar hverju sinni. Ljóst er að markaðsaðilar horfa stöð- ugt til fleiri þátta en sögulegra fjárhagsupplýsinga. Ekki hefur farið fram hjá neinum sem lætur sig ársreikninga og fjárhags- upplýsingar varða sú aukna áhersla sem lögð er á ófjárhagslega upplýsingagjöf, t.a.m. með auknum kröfum um upplýsingagjöf í skýrslu stjórnar. Ekki er víst að allir markaðsaðilar geri sér grein fyrir því að ekki er gerð krafa um endurskoðun eða aðra staðfestingu á þeim upplýsingum sem þar koma fram. Fjárfestar eru í vaxandi mæli farnir að setja sér hin ýmsu ófjár- hagslegu viðmið í fjárfestingastefnu sinni, en enn sem komið er hefur verið lítið um að þessar upplýsingar séu staðfestar með formlegum hætti. Áhugaverð þróun er að verða hvað þennan þátt varðar, þar sem sérstakar staðfestingar endur- skoðenda á tilteknum ófjárhagslegum upplýsingum sem birtar eru með ársreikningum fylgja í auknum mæli með ársreikning- um stærri félaga. Í þeim staðfestingum er almennt stuðst við staðla sem ætlaðir eru fyrir aðra staðfestingarvinnu svo sem „ISAE 3000 Assurance engagements other than audits or revi- ews of historical financial information“. Endurskoðendur veita hinar ýmsu staðfestingar bæði til hins opinbera tengt kröfum í lögum um einkahlutafélög og hluta- félög en einnig margþættar staðfestingar til hinna ýmsu aðila bæði opinberra og innan almenns viðskiptalífs. Það er mat undirritaðar að talsvert verk sé óunnið hvað varðar upplýsingagjöf um staðfestingar endurskoðenda. Kynna þarf fyrir markaðsaðilum og hinu opinbera, störf og aðferðafræði endurskoðenda hvað varðar staðfestingu fjárhagslegra og ófjárhagslegra upplýsinga. Staðfestingar á grundvelli staðals um aðra staðfestingarvinnu ISAE 3000 og staðals um verkefni unnin á grundvelli fyrirfram skilgreinda aðgerða ISRS 4400, eru unnar með formlegum og rekjanlegum hætti með vísan í staðalinn. Undirrituð telur að það sé tækifæri fyrir stétt endur- skoðenda að vekja á sér athygli hvað þennan þátt varðar. Það er jafnframt mikilvægt í þessu samhengi að fylgja því eftir að aðrar stéttir noti ekki lögvernduð starfsheiti og hugtök, s.s. endurskoðandi og endurskoðun. Að lokum langar mig að nefna að í desember bættust sex nýir aðilar í hóp löggiltra endurskoðenda og vil ég nota tækifærið og óska þeim innilega til hamingju með árangurinn og bjóða þau velkomin í félagið. Þá þakkar undirrituð fyrir hönd stjórnar þeim fjölmörgu félags- mönnum sem komið hafa að starfsemi FLE á árinu. Félagið á mikið undir starfi félagsmanna, sem kemur m.a. fram í nefndar- störfum, vinnuhópum og með fyrirlestrum og fræðslustarfi. Fyrir hönd stjórnar þakka ég öllum þessum aðilum fyrir fram- lag sitt á árinu, sömuleiðis eru starfsmönnum félagsins færðar bestu þakkir yfir samstarfið. Að lokum vil ég þakka meðstjórnarmönnum fyrir gott og árangursríkt samstarf á árinu. Bryndís Björk Guðjónsdóttir Tekið á móti nýjum félagsmönnum í febrúar 2020.

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.