FLE blaðið - 01.01.2021, Qupperneq 28

FLE blaðið - 01.01.2021, Qupperneq 28
28 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021 STAÐGREIÐSLA SKATTS AF ARÐI TIL LÖGAÐILA INNAN EES Bjarni Þór Bjarnason, meðeigandi, Skatta- og lögræðiráðgjöf Deloitte …að þrátt fyrir að skattalög falli utan gildissviðs EES samningsins ber aðildarríkjum samningsins engu að síður að beita skattlagningarvaldi sínu þannig að það brjóti ekki í bága við ákvæði samningsins BREYTING Á LÖGUM NR. 94/1996 UM STAÐGREIÐSLU SKATTS Á FJÁRMAGNSTEKJUR – ARÐGREIÐSLUR Á MILLI INNLENDRA AÐILA Í maí sl. voru tóku gildi breytingar á ákvæði 3. mgr. 4. gr. laga nr. 94/1996 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, sbr. lög nr. 33/2020 um breytingu ýmsum lögum um skatta og gjöld. Í stuttu máli felur breytingin það í sér að ekki er lengur skylt að halda eftir staðgreiðslu af arði sem úthlutað er á milli félaga sem falla undir 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/2003 um tekju- skatt, en undir ákvæðið falla hlutafélög, einkahlutafélög og samlagshlutafélög sem eru sjálfstæðir skattaðilar. Fyrir gildistöku ofangreindra breytingalaga hvíldi sú skylda á hlutafélögum að halda eftir staðgreiðslu af arði sem úthlutað var á milli slíkra félaga, enda þótt hann kæmi í raun ekki til skattlagningar þar sem slíkar arðstekjur eru frádráttarbærar samkvæmt 9. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003. Þó var sú undan- tekning gerð að ekki var skylt að halda eftir staðgreiðslu skatts af arði sem úthlutað var á milli hlutafélaga sem höfðu fengið heimild til samsköttunar samkvæmt 55. gr. laga nr. 90/2003. Eins og rakið var í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis um frumvarpið sem varð að lögum nr. 33/2020 leiddi þetta fyrirkomulag til óhagræðis fyrir bæði greið- anda og móttakanda arðs auk þess sem ríkissjóður hefði í raun ekki tekjur af þeirri staðgreiðslu sem skilað væri af slíkum arð- greiðslum. Lagði nefndin því til að ofangreind breyting á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur yrði gerð þar sem kveðið yrði á um að afnumin yrði skylda þeirra félaga sem falla undir 1. tölul. 2. gr. tekjuskattslaga til að halda eftir og skila staðgreiðslu af arðgreiðslum þeirra á milli. ÓBREYTT LÖG UM STAÐGREIÐSLUSKYLDU ARÐGREIÐSLNA TIL ERLENDRA AÐILA INNAN EES Athygli vekur að í þinglegri meðferð framangreindra breytinga- laga virðist ekki hafa verið hugað að því hvaða áhrif breytingin hefði í för með sér fyrir arðgreiðslur til erlendra lögaðila innan EES. Samhengisins vegna þykir rétt að nefna að staðgreiðsluskylda skatts af arðgreiðslum til erlendra aðila byggir ekki á sömu ákvæðum og rakin hafa verið hér að framan, heldur byggist hún á lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. A-lið 2. gr. laganna, sbr. 7. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Með lögum nr. 33/2020 voru engar breytingar gerðar á þeim ákvæðum laganna sem varða arðgreiðslur til erlendra aðila.

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.