FLE blaðið - 01.01.2021, Page 31
31FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021
Síðastliðið ár hefur því verið mjög sérstakt fyrir félagið í alla
staði og hefur aðal áskorun þess tengst því með hvaða hætti
við gætum staðið að ráðstefnu- og námskeiðahaldi. Við vonum
því að framboð félagsins hafi aukið fjölbreytileika og möguleika
fyrir félagsmenn til að uppfylla þær endurmenntunarkröfur sem
gerðar eru og nokkuð ljóst að eitthvað af þessum lausnum
munu fylgja okkur inn í COVID-19 lausa framtíð.
NEFNDARSTÖRF
Í ársskýrslu félagsins er að finna ítarlegt yfirlit yfir störf
fastanefnda félagsins sem eru sex talsins, en þær eru: Álits-
nefnd, Endurskoðunarnefnd, Gæðanefnd, Menntunarnefnd,
Reikningsskilanefnd og Skattanefnd. Það er deginum ljósara
að störf þessara nefnda og framlag þeirra einstaklinga sem þar
leggja sitt af mörkum er afar mikilvæg fyrir félagið og þeim hér
með færðar sérstakar þakkir fyrir samstarfið á liðnu ári.
Álitsnefndinni berast árlega ýmis erindi frá Nefndasviði Alþing-
is og jafnframt er fylgst með Samráðsgáttinni þar sem birtast
frumvörp í vinnslu og ýmsar reglugerðir án þess að óskað sé
sérstaklega eftir formlegri umsögn frá félaginu. Á liðnu ári ber
helst að nefna breytingar á lögum um ársreikninga og endur-
skoðun sem og ýmsar reglugerðir sem tengjast störfum endur-
skoðenda sem voru settar í kjölfar nýrra laga um endurskoð-
endur og endurskoðun sem tóku gildi í byrjun árs 2020 eins og
öllum er kunnugt.
Endurskoðunarnefndin fylgist að venju með því sem er að ger-
ast á sviði endurskoðunar og kom meðal annars að skipulagi
Endurskoðunardagsins í vor sem svo frestaðist fram á haustið
eins og áður er getið. Að undanförnu hefur svo nefndin verið
að skoða og hugleiða hinar ýmsu staðfestingar endurskoðenda
með námskeið og leiðbeiningar í huga.
Jakkafatajóga í fullum gangi á ráðstefnu í september.
Hér er spjallað á hádegisfundi í febrúar 2020. Frá Skattadeginum – fylgst með af miklum áhuga.