FLE blaðið - 01.01.2021, Blaðsíða 33
33FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021
NÝTT HLUTVERK
ENDURSKOÐENDARÁÐS
RÆTT VIÐ ÁSLAUGU ÁRNADÓTTUR FORMANN ENDURSKOÐENDARÁÐS
Ingibjörg Ester Ármannsdóttir, endurskoðandi hjá KPMG
Ágústa Katrín Guðmundsdóttir endurskoðandi hjá AKG endurskoðun ehf.
Stór breyting er að nú er gert ráð fyrir að
endurskoðunarfyrirtæki verði valin til að
sæta gæðaeftirliti,
en ekki einstakir endurskoðendur eins og
verið hefur
Í endurskoðendaráði sitja þrír aðilar. Það er ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra sem skipar þrjá einstaklinga í endur-
skoðendaráð til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara. Þeir
sem nú sitja í ráðinu voru skipaðir frá og með 1. janúar 2020.
Þessir aðilar eru:
Áslaug Árnadóttir hefur verið formaður endurskoðendaráðs frá
2013. Hún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með fram-
haldsmenntun í Evrópurétti frá Stokkhólmsháskóla og hefur
málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti. Áslaug hefur starfað á
Alþingi og sem aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt. Þá var
hún skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra í viðskipta-
ráðuneytinu í nokkur ár, en starfar nú sem lögmaður hjá
Landslögum.
Hildur Árnadóttir hefur átt sæti í endurskoðendaráði frá 2009.
Hún er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og fékk réttindi
sem löggiltur endurskoðandi 1995 en hefur lagt inn réttindin.
Hildur hefur starfað hjá KPMG, var framkvæmdastjóri fjármála
hjá Bakkavör Group hf., forstöðumaður fjárstýringar hjá
Íslandsbanka en starfar nú sem ráðgjafi og stjórnarmaður.
Hildur situr m.a. í stjórn Sjóvá Almennra trygginga hf.,
Íslandsstofu og Eldey TLH.
Jón Arnar Baldurs hefur setið í endurskoðendaráði frá ársbyrj-
un 2020. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og
hefur réttindi sem löggiltur endurskoðandi. Jón starfaði sem
endurskoðandi hjá PricewaterhouseCoopers ehf. og var fjár-
málastjóri hjá Nýsi hf. Þá var hann yfirmaður eftirlits með
beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS) hjá ársreikn-
ingaskrá, var endurskoðandi hjá Eimskip og starfaði sem verk-
efnastjóri hjá Alþjóða reikningsskilaráðinu. Hann starfaði sem
kennari við Háskólann í Reykjavík en er nú aðjúnkt við við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands auk þess sem hann rekur ráð-
gjafafyrirtækið Ró ehf.