FLE blaðið - 01.01.2021, Qupperneq 34

FLE blaðið - 01.01.2021, Qupperneq 34
34 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021 Við spurðum Áslaugu nokkurra spurninga sem brunnu á félags- mönnum FLE. Hvers vegna ert þú formaður Endurskoðendaráðs? Ég var skipaður formaður endurskoðendaráðs sem starfaði á grundvelli eldri laga um endurskoðendur fyrst 2013 og aftur 2017. Svo var ég skipuð formaður endurskoðendaráðs sem starfar á grundvelli gildandi laga um endurskoðendur og endur- skoðun frá 1. janúar 2020. Í öll skiptin hef ég verið skipuð af ráðherra án tilnefningar. Sem formaður Endurskoðendaráðs þarft þú að uppfylla skilyrði um skipan sem héraðsdómari, hvers vegna skipt­ ir það máli að löglærður aðili sé í ráðinu með þessar hæfniskröfur? Samkvæmt lögum skal formaður endurskoðendaráðs fullnægja skilyrðum til að vera skipaður í embætti héraðsdómara og hefur það skilyrði verið í lögunum frá því að endurskoðendaráð var sett á fót með lögum nr. 18/1997. Ég þekki ekki ástæðuna fyrir því að þetta hæfnisskilyrði er í lögum um endurskoðendur, en sama skilyrði er gert til formanna fjölda stjórnsýslunefnda. Ég tel hins vegar nauðsynlegt að góð þekking á lögum sé innan endurskoðendaráðs. Ráðið er stjórnsýslunefnd sem tekur stjórnvaldsákvarðanir og ber að gæta að stjórnsýslulögum og meginreglum stjórnsýsluréttar við alla málsmeðferð. Þá reynir mjög oft á túlkun ýmissa laga í störfum ráðsins. Mikil breyting varð með nýjum lögum um endurskoðend­ ur og endurskoðun sem tóku gildi 1. jan. 2020 á fyrir­ komulagi eftirlits með endurskoðendum. Hvernig mun sú breyting verða í framkvæmd? Miklar breytingar urðu á störfum endurskoðendaráðs með gild- istöku laga nr. 94/2019. Meðal annars voru gerðar breytingar á ákvæðum um gæðaeftirlit með störfum endurskoðenda. Af nýju lögunum og reglugerð ESB nr. 537/2014 leiðir að ráðið má ekki lengur útvista framkvæmd gæðaeftirlits með endurskoðun eininga tengdum almannahagsmunum. Það er því ljóst að FLE getur ekki lengur framkvæmt gæðaeftirlit með sama hætti og áður. Endurskoðendaráð hefur gefið út nýjar reglur um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda, nr. 1091/2020. Í reglunum er kveðið á um að ráðið sjálft, eða starfsmenn á vegum þess, framkvæmi gæðaeftirlit á endurskoðun eininga tengdum almannahagsmunum. Varðandi gæðaeftirlit á annarri endurskoðun þá gera reglurnar ráð fyrir því að ráðið framkvæmi það eftirlit eða semji við fagfélög endurskoðenda um fram- kvæmd gæðaef t i r l i ts hjá fé lagsmönnum sínum. Endurskoðendaráð hefur átt í viðræðum við FLE um þetta, en enn liggur ekki fyrir hvort að samið verður við félagið vegna gæðaeftirlits 2021. Þá er það einnig nýmæli að gátlistar sem birtir voru með fyrri reglum, eru nú birtir á heimasíðu ráðsins. Er ætlunin að auka sveigjanleika með þessu og gefa tækifæri á að uppfæra gát- listana árlega ef ástæða þykir til. Loks hefur gjaldskrá fyrir gæðaeftirlit verið samþykkt af ráðherra og bíður birtingar í Stjórnartíðindum. Stór breyting er að nú er gert ráð fyrir að endurskoðunarfyrir- tæki verði valin til að sæta gæðaeftirliti, en ekki einstakir endur- skoðendur eins og verið hefur. Er gert ráð fyrir því að fyrst fari fram skoðun á gæðakerfum endurskoðunarfyrirtækis og að ákveðið verði á grundvelli niðurstöðu þeirrar skoðunar hvaða verkefni koma til skoðunar. Við lok gæðaeftirlits er svo gert ráð fyrir að haldinn verði fundur með endurskoðanda eða fyrirsvarsmanni endurskoðunarfyrir- tækis þar sem farið verður yfir niðurstöður eftirlitsins. Vegna COVID-19 náðist því miður ekki að framkvæma gæða- eftirlit á árinu 2020, en gert er ráð fyrir að eftirlit verði fram- kvæmt á grundvelli nýju reglnanna á árinu 2021. Telur þú að endurskoðendur geti fylgst með eigin störf­ um? (Hagsmunasamtök og eftirlit – fer það saman?) Það má alltaf deila um það hvort að fagfélög séu rétti aðilinn til að hafa eftirlit með sínum félagsmönnum. Að mínu mati hefur framkvæmd FLE á gæðaeftirliti síðustu ár gengið mjög vel og hefur eftirlitið verið framkvæmt af fagmennsku. Þá er gæða- eftirlit með endurskoðun eininga sem ekki eru tengdar almannahagsmunum framkvæmt af fagfélögum bæði í Noregi og Svíþjóð. Hef ég rætt það fyrirkomulag bæði við sænska og norska eftirlitsaðila sem telja fyrirkomulagið hafa reynst vel. Eins og kemur fram í svari þínu hér að framan þá hafa miklar breytingar orðið á störfum endurskoðendaráðs með gildistöku laga nr. 94/2019. Hver eru helstu störf endurskoðendaráðs eftir þessar breytingar fyrir utan gæðaeftirlit með endurskoðendum ? Hlutverk endurskoðendaráðs er að hafa eftirlit með því að endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki ræki störf sín í samræmi við ákvæði laga um endurskoðendur og endurskoðun nr. 94/2019, siðareglur endurskoðenda og aðrar reglur sem taka til starfa endurskoðenda. Áslaugu Árnadóttur formaður Endurskoðendaráðs

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.