Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 2023, Blaðsíða 16

Sjómannadagsblaðið - 2023, Blaðsíða 16
16 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 3 Auk forsíðumyndar blaðsins, sem Sigurgeir Jónasson ljósmyndari tók af Landa- kirkju í Vestmannaeyjum, með eldsúluna frá gosinu í baksýn, eru fimm síður lagðar undir umfjöllun um gosið í Heimaey. Yfirskrift umfjöllunarinnar er „Vestmannaeyjar og eldurinn“, en Jóhann Gunnar Ólafsson, sem ritar greinina, hefur umfjöllun sína á því að tala um hvernig mörgum sem orðið hafi samgrónir Eyjunum hafi þótt Vestmannaeyjar fegursti staður á jörðinni. „Þar áttum við okkar gleðistundir, æskuástir og sorgar- stundir. Allar athafnir okkar bundu okkur tryggðaböndum við þær og þótt örlögin hafi leitt okkur suma á aðrar slóðir, hafa tengslin við Eyjarnar aldrei rofnað, heldur hafa þau styrkzt og eflzt með hverju ári, sem liðið hefur.“ Jóhann lét af starfi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum árið 1939 en var á þessum tíma kominn til Reykjavíkur, þar sem hann fékkst við lögmannsstörf og sagnfræði. „Það voru okkur öllum harma- fregnir, sem bárust úr Eyjunum aðfaranótt 23. jan. s.l., þegar suð- austanverð Heimaey sprakk og gos upphófst þar með þeim ógnum, sem slíkum hamförum eru sam- fara. Milli vonar og ótta fylgdumst við með fregnum úr Eyjum frá því gosfregnin barst snemma morguns og síðan frá degi til dags, og alltaf vonað og beðið að hamförunum tæki að linna,“ segir í umfjölluninni. Fram kemur að um miðnætti 23. jan- úar 1973 og raunar nokkru fyrr hafi orðið jarðhræringar í Vestmanna- eyjum. „Eldgos hófst síðan á sjálfri Heimaey og við bæjardyrnar, með miklum gný, hávaða og sprenging- um.“ Óvissa um framhaldið Jóhann Gunnar segir að ljóst hafi verið strax á fyrstu klukkustund- um gossins hvílíkar hamfarir stæðu fyrir dyrum og til að forða manntjóni hafi Vestmannaeyingar ákveðið að yfirgefa Heimaey. „Á fyrstu klukkustundum eftir að gosið byrjaði, og menn höfðu kynnt sér útlitið á gosstöðvunum, hafði skipafloti Vestmannaeyinga lagt úr höfn með um 4000 manns um borð, en íbúar í Vestmanna- eyjum voru 1. desember 1972 samkvæmt tölum Þjóðskrár 5278 manns, 2718 karlmenn og 2555 konur. Flutti flotinn allt þetta fólk til Þorlákshafnar og var þar tekið á móti því og það flutt til Reykjavík- ur og víða um Suðurnes og Suður- land.“ Lítill hópur hafi orðið eftir og beðið átekta. Þegar greinin var rituð var enn allt í óvissu um framtíð Vest- mannaeyja. Bent er á hversu mik- inn þátt fiskiskipafloti Vestmanna- eyja hafi átt í að færa þjóðarbúinu tekjur og frá því greint að þing- menn Suðurlands hafi borið fram á Alþingi þingsályktunartillögu um að láta hefja „athugun á stað- setningu nýrrar hafnar á suður- strönd landsins á svæðinu frá Dyr- hólaey og vestur um“ ef svo kynni að fara að höfnin í Vestmannaeyj- um og hafnarstæði þar færi for- görðum vegna gossins. „Það er þungt andlegt áfall að verða að hverfa út í óvissuna og eygja ekkert til miða,“ segir Jó- hann Gunnar í niðurlagi greinar sinnar. „En Vestmannaeyingar eru manna bezt undir það búnir að sæta áföllum, og þessvegna leikur ekki vafi á því að þeir láta ekki bugazt, og er það von mín og ósk þeim til handa að framtíðin verði þeim eins hliðholl eins og fortíðin hefur verið.“ Öryggismálin höfuðmál Á þessum árum voru alvarleg slys til sjós algengari en nú er, en til marks um það er í blaðinu að finna upptalningu á sjómönnum sem farist höfðu af slysförum frá síð- ustu útgáfu blaðsins. Tekið er fram hverjir þetta voru, hvar þeir voru búsettir og hvort þeir voru kvæntir eða skildu eftir sig börn. Sjá má á fyrirsögn upptalningarinnar hér til hliðar að um var að ræða 28 Íslendinga, fimm Færeyinga og einn Dana. Þegar rýnt er í tölurnar má sjá að rúmur helmingur þeirra sem taldir eru upp lést þegar bát- ur þeirra annaðhvort sökk eða strandaði í einu tilviki. Um leið er sláandi að sjá að sjö mannanna drukknuðu í höfn, ýmist hér við land eða erlendis, og sex höfðu fallið útbyrðis. Í grein sem Páll Guðmundsson skipstjóri skrifar í blaðið bendir Hér lítum við í baksýnisspegilinn og gluggum í efni Sjó- mannadagsblaðsins 1973, fyrir 50 árum. Einn stærsti viðburður þess árs, gosið í Heimaey 23. janúar, er eðli- lega fyrirferðarmikill í blaðinu en einnig er áberandi umfjöllun um öryggismál sjómanna og sláandi að sjá að 34 sjómenn létust milli tölublaða Sjómannadagsblaðsins. Litið um öxl — Sjómannadagsblaðið fyrir 50 árum: Vestmannaeyjagosið var fyrirferðarmikið í blaðinu milli vonar og ótta fylgdumst við með fregnum úr Eyjum frá því gosfregnin barst snemma morguns og síðan frá degi til dags, og alltaf vonað og beðið að hamförunum tæki að linna. Forsíða Sjómannadagsblaðsins 1973. Tíðarandinn er um margt breyttur frá því fyrir fimmtíu árum. Þess sér meðal annars merki í auglýs- ingum í blaðinu, en svona aug- lýsti Útvegs- bankinn á sjó- mannadaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.