Sjómannadagsblaðið - 2023, Blaðsíða 52
52 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 3
Togarinn Skúli fógeti, eign
útgerðarfélagsins Alliance,
fórst á mánudagsnóttina í
Grindavík og drukknuðu 13 menn,
allir úr Reykjavík, þar á meðal
skipstjórinn Þorsteinn Þorsteins-
son, en 24 skipverjar björguð-
ust. Versta veður var þegar þetta
átakanlega slys vildi til,“ sagði í
knappri frásögn á forsíðu Dags
á Akureyri 13. apríl 1933. Þá voru
þrír dagar liðnir frá hörmulegu
strandi síðutogarans Skúla fógeta
skammt vestan við Staðarhverfið
í Grindavík aðfaranótt 10. apríl.
Aðrir höfðu gert atburðunum ítar-
legri skil.
Skipið var að koma af veiðum
þegar slysið varð, en ekki er vitað
um aðrar orsakir strandsins en að
veður var afar slæmt, snjóél gengu
yfir í miklu roki og svartamyrkri.
Boð um strandið bárust í land
þegar klukkuna vantaði tuttugu
mínútur í eitt um nóttina. Vegna
þess að símasamband lá niðri
leið þó alllangur tími þar til tókst
að koma boðum um strandið til
Grindavíkur. Það gekk þegar upp-
lýsingum um strandið var útvarp-
að með veðurfréttum korter fyrir
tvö um nóttina.
Alþýðublaðið segir svo frá
daginn eftir strandið að þegar sím-
stöðvarstjórinn í Grindavík, Karl
Guðmundsson, hafi farið á fætur
til að taka veðurfrétt, eins og hann
þurfti að gera vegna róðra, hafi
hann orðið þess vís að Skúli fógeti
væri strandaður nálægt Grinda-
vík. „Klæddi hann sig þá í snatri
og vakti upp björgunarliðið, og
fór það þegar að leita meðfram
ströndinni,“ segir þar.
Í afmælisblaðinu „Útkall rauð-
ur“ sem gefið var út árið 2007 í
tilefni af 60 ára afmæli Björgunar-
sveitarinnar Þorbjörns í Grinda-
vík segir í frásögn af atburðunum
að Einar Einarsson í Krosshúsum,
formaður slysavarnasveitarinnar á
staðnum, hafi brugðist skjótt við og
látið kalla saman björgunarliðið,
sem hafi haldið af stað til að leita
að skipinu, en menn hafi ekki vit-
að hvar það var. Klukkan var þá
um þrjú og því nærri þrír tímar frá
strandinu.
„Björgunarsveitin lagði af stað á
bílum og hafði með sér línubyssu,
14 eldflaugar, 2 skotlínur í pökkum
og eina grind, 170 faðma líflínu,
Skipið var að koma af
veiðum þegar slysið varð,
en ekki er vitað um aðrar
orsakir strandsins en
að veður var afar slæmt,
snjóél gengu yfir í miklu
roki og svartamyrkri.
• 90 ár eru liðin frá því að síðutogarinn Skúli fógeti strandaði við Staðarhverfið í Grindavík
• Þrettán fórust en 24 björguðust • Viðbúnaður og vakt björgunarsveita auk notkunar
fluglínu sönnuðu enn gildi sitt
Hér sést togarinn Skúli fógeti
RE-144 þar sem hann brotnar
í öldurótinu á strandstað við
Grindavík í maí 1933.
Mynd/ljósMyndasafn reykjaVíkur –
einar einarsson
Björgunarstörf
gengu hratt þegar
skipið loksins fannst
Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn