Sjómannadagsblaðið - 2023, Blaðsíða 45
N ýtt miðlægt skráningar-
kerfi sjóslysa, ATVIK-
sjómenn, var tekið í gagn-
ið fyrr á þessu ári. Vonir standa til
þess að kerfið muni ekki aðeins
einfalda skráningu slysa og
„næstum því“-slysa á sjó, heldur
jafnframt að upplýsingarnar megi
nota í gagnadrifnu forvarnar-
starfi sem svo fækki óhöppum
enn frekar. Einn umsjónarmanna
kerfisins segir að með tilkomu
þess gætu Íslendingar náð forystu
í slysaskráningum og öðlast ómet-
anlegar upplýsingar til framtíðar.
Áætlað er að á annað hundrað
slys verði á sjófarendum á hverju
ári. Að sögn Þorsteins Þorkels-
sonar, sérfræðings í öryggis- og
fræðsludeild Samgöngustofu, hef-
ur það þó reynst þrautin þyngri að
viðhalda yfirsýn yfir óhöppin, þar
sem tölur um slys á sjó eru geymd-
ar víða og bundnar mismunandi
takmörkunum.
„Okkur vantar betri tölur um slys
á sjó á Íslandi,“ segir Þorsteinn.
„Við erum með tölur frá rann-
sóknarnefnd samgönguslysa en
við sjáum líka að gríðarlega mörg
slys eru tilkynnt beint til Sjúkra-
trygginga og tryggingarfélaga sem
fara ekki í rannsókn hjá nefndinni.
Við náum því ekki almennilega
utan um hvað er að gerast í þeim
tilfellum, því við erum einfaldlega
ekki með þær upplýsingar.“
Gjöf frá VÍS
Nýja skráningarkerfið, sem fékk
heitið ATVIK-sjómenn, er hugsað
sem svar við þessari upplýsinga-
óreiðu. Þorsteinn segir að ATVIK-
sjómenn eigi uppruna sinn hjá VÍS,
þar sem það nýttist sem atvika-
skráningarkerfi. Fólk hafi þó áttað
sig á því að kerfið byði upp á meira
en að þjónusta einungis viðskipta-
vini VÍS og því hafi farið af stað
umræða um að gefa opinberum að-
ilum kerfið. Það hafi að lokum orð-
um raunin þegar RNSA fékk kerfið í
sína eigu og Samgöngustofa fari nú
með umsjón þess. Síðan þá hefur
kerfið „þróast á mjög skemmtilegan
hátt eftir samtal RNSA, samgöngu-
yfirvalda og VÍS,“ eins og Þorsteinn
kemst að orði.
Í október 2022 fór í loftið nýtt
ATVIK-sjómenn sem er aðgengi-
legt öllum útgerðum til notkunar
þeim að kostnaðarlausu. Þor-
steinn segir að síðustu mánuðum
hafi verið varið í kynningu, þróun
og nýskráningum í kerfið, sem hafi
gengið vonum framar. Er nú svo
komið að 13 af 20 stærstu útgerð-
um landsins eru komnar í ATVIK-
sjómenn og segir Þorsteinn að von-
ir standi til að allar útgerðir verði
komnar þangað áður en langt um
líður. Það sé gríðarlega mikilvægt
að flestir sjófarendur nýti sér kerf-
ið, einmitt til þess að það uppfylli
markmið sitt um að ná betur utan
um óhöpp á sjó. Engin lagaleg
skylda hvílir á útgerðum eða öðr-
um að senda inn tilkynningar í
ATVIK-sjómenn en Þorsteinn segir
að fyrstu notendur kerfisins hafi
séð hag sinn í því að taka þátt í
þessu framtaki, enda sé það gott
tæki til þess að fækka slysum.
„Næstum því“-slys mikilvæg
„Með því að taka upp ATVIK-sjó-
menn erum vonumst við til að hafa
búið til vettvang þar sem við getum
náð yfirsýn yfir öll óhöpp á sjó, að
við séum með rétta tölfræði. Þetta
er heimagerður skráningargrunnur
sem getur nýst öllum, en auðvit-
að með ákveðnum takmörkunum
vegna persónuverndar,“ segir Þor-
steinn. Góður árangur hefur náðst
á undanförnum árum við að fækka
alvarlegum slysum á sjó en engu að
síður verða enn rúmlega 100 óhöpp
á ári. Til þess að ráða niðurlögum
þeirra segir Þorsteinn ekki aðeins
mikilvægt að skrá þau samvisku-
samlega heldur jafnframt að til-
kynna um öll „næstum því“-slys
eins og þau eru kölluð – óhöpp á sjó
sem hefðu getað leitt til slyss, þrátt
fyrir að allt hafi farið á besta veg.
„Það eru einfaldlega ekki nógu
mörg slys tilkynnt,“ segir Þorsteinn.
„Við höfum heilt yfir náð frábær-
um árangri í að fækka alvarlegri
slysum, en við þurfum að horfa
meira til minniháttar slysanna
sem ekki er nógu oft greint frá. Það
er nauðsynlegt ef við ætlum að
útrýma þeim, því við getum ekki
brugðist við einhverju sem enginn
veit hvað er.“ Þorsteinn tekur sem
dæmi að útgerðum og yfirvöldum
gæti þótt áhugavert að heyra ef
tilteknar mottur á skipum eigi það
til að losna eða að einhver handrið
þyki illa hönnuð. Með því að vekja
máls á því í gegnum ATVIK-sjó-
menn mætti koma í veg fyrir að
aðrir sjófarendur reki sig á sama
vandamál – og um leið koma í veg
fyrir möguleg slys sem af þeim
gætu hlotist. Það skipti gríðarlega
miklu máli fyrir forvarnarhlutverk
Samgöngustofu að hafa yfirsýn yfir
þessi tilfelli.
„Í framtíðinni gætu þetta orðið
ómetanlegar upplýsingar. Við
sjáum það á skráningargrunnum
erlendis, eins og hjá Norðmönnum,
að ef við náum að þroska þetta kerfi
áfram gætum við náð ákveðinni
forystu í þessum málum,“ segir
Þorsteinn.
Betri samtenging á döfinni
Þorsteinn segir að ATVIK-sjómenn
sé í áframhaldandi þróun svo
að það geti orðið enn miðlægari
vettvangur fyrir slysaskrán-
ingu. Þannig standi til að kerfið
geri notendum kleift að senda
tilkynningar um slys beint til
Sjúkratrygginga og trygginga-
félaganna og koma þannig í veg
fyrir tvíverknað. Í staðinn fyrir að
notandinn þurfi að setja sig sjálfur
í samband við alla hlutaðeigandi
megi einfaldlega gera það með
einum smelli í gegnum ATVIK-
sjómenn. „Það er mikill vilji meðal
Sjúkratrygginga og tryggingafé-
laga að taka þátt í þessu með okk-
ur og vonandi klárast þessi vinna
síðar á þessu ári,“ segir Þorsteinn.
Allar nánari upplýsingar um AT-
VIK-sjómenn má nálgast á heima-
síðu Samgöngustofu og á slóðinni
atviksjomenn.is.
»– sój
Gætu orðið
ómetanlegar
upplýsingar
• Á hverju ári er áætlað að hundrað slys verði á sjófarendum • Nýtt skráningarkerfi
svarar ákalli um áreiðanlegar tölulegar upplýsingar • Þróun kerfisins átti sér stað
hjá VÍS en það er nú á hendi Samgöngustofu
Þorsteinn Þorkelsson,
sérfræðingur í öryggis- og
fræðsludeild Samgöngustofu,
segir að í gegnum tíðina hafi
það reynst þrautin þyngri
að halda utan um skráningu
slysa og atvika sem leitt
hefðu getað til slysa á sjó.
Mynd/Hreinn Magnússon
45 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð J ú N Í 2 0 2 3