Árbók íþróttamanna - 01.12.1946, Blaðsíða 9
FRJALSAR IÞROTTIR
Frjálsíþróttamótin í Reykjavík 1945
Síðustu árin hefur þeim f jölgað ört, sem iðka frjálsar íþróttir hér á landi.
Og jafnframt hefur árangurinn í hinum ýmsu íþróttagreinum stórum batn-
að. Arið 1944 voru framfarirnar svo miklar frá árinu áður, að eins-
dæmi má telja. Hugðu þá sumir, að nú mundi verða hlé á framförunum
a. m. k. að hin nýsettu met fengju staðizt flest áhlaupin. Raunin varð þó
sú, að framfarirnar héldu enn áfram og mun óhætt að fullyrða, að árið
1945 hafi verið það viðburða- og árangursríkasta í sögu frjálsíþrótta hér
á landi til þess tíma. Á árinu voru sett 18 ný Islandsmet og voru þau öll
sett á mótum í Reykjavík. Auk þessa voru sett enn fleiri drengjamet, þar
af nokkui' utan Reykjavíkur. Af þessum 18 nýju metum var eitt — kúlu-
varpsmet Gunnars Huseby, 15,57 metrar — svo gott, að enginn annar Ev-
rópumaður náði jafngóðum árangri það ár. Var þetta staðfest í afrekaskrá
málgagns íþróttasambandsins bandaríska. Var Gunnar Huseby talinn þar
bezti kúluvarpari í heiminum árið 1945, að Bandaríkjamönnum einum undan-
skildum. Er óhætt að telja þetta mikinn og óvæntan viðburð í íþróttalífi
Islands. Annar Islendingur, Skúli Guðmundsson, varð einnig þess heiðurs
aðnjótandi að komast í afrekaskrána. Var hann 11. í röðinni í hástökki
fyrir afrek sitt, 1,92 metra.
Árið 1945 voru haldin 8 opinber frjálsíþróttamót í höfuðstaðnum, þar
af 2 drengjamót. Auk þess voru haldin 2 víðavangshlaup, 2 götuboðhlaup,
eitt skólamót og loks innanféiagsmót fjögurra Reykjavíkurfélaganna.
Hér fer á eftir stutt skýrsla. um mótin.
VÍÐAVANGSHLAUP OG GÖTUBOÐHLAUP
30. VÍÐAVANGSHLAUP Í.R. fór fram sumardaginn fyrsta, 19. apríl.
Keppendur voru 13, 7 frá Ármanni, 4 frá Í.R. og 2 frá K.R. (ekki full
sveit). Hlaupin var ný leið, um 4 km., byrjað í úthverfi bæjarins líkt og
7