Árbók íþróttamanna - 01.12.1946, Síða 28
K.R.-sveitin, sem setti
met í 4x400 m. boð-
hlaupi á Meistaramót-
inu. Frá vinstri: Páll
Halldórsson, Brynjólf-
ur Ingólfsson, Svavar
Pálsson og Óskar Guð-
mundsson.
SkólamótiS
Laugard. 13. okt. fór fram skólakeppni í frjálsum íþróttum á íþróttavell-
inum. Alls tóku 9 framhaldsskólar þátt í keppninni með samtals 42 kepp-
endum. Urslit urðu þau, að Háskólinn vann með 50 stigum, Menntaskól-
inn varð næstur með 35 stig, þá Samvinnuskólinn með 26, 4. varð Verzlun-
arskólinn með 21, 5. Iðnskólinn með 14, 6. Kennaraskólinn með 5 og 7.
Loftskeytaskólinn með 3 stig. Þetta er annað skólamótið í frjálsum íþrótt-
um, sem hér er háð. Það fyrsta var haldið 21. maí 1939, en þá tóku aðeins
tveir skólar þátt í því. Sigraði Menntaskólinn þá Háskólann með talsverð-
um yfirburðum. — Bezta einstaklingsafreki þessa skólamóts náði Skúli
Guðmundsson, Háskólanum. Stökk hann 1,90 m. í hástökki, er gefur 909
stig. Kolbeinn Kristinsson úr Samvinnuskólanum setti hinsvegar nýtt
drengjamet í stangarstökki, 3,60 m., en hann átti sjálfur gamla metið, 3,58
m. — Helztu úrslit urðu þessi:
100 m. hlaup: 1. Brynjólfur Ingólfsson, H. 11,9 sek. 2. Haukur Clausen,
M. 11,9 sek. 3. Sævar Magnússon, L. 12,1 sek. Hástökk: 1. Skúli Guðm.
H. 1,90 m. 2. Kolbeinn Kristinsson, S. 1,75 m. 3. Haukur Clausen, M. og
Örn Clausen, M. 1,70 m. Kúluvarp: 1. Vilhj. Vilmundar, V. 12,94 m. 2.
26