Árbók íþróttamanna - 01.12.1946, Síða 101
Armanns eru þessir: Ögmundur Gnðmundsson, Magnús Kristjánsson,
Stefán Jónsson, Gísíi Jónsson, Guðm. Guðjónsson, Einar Hjartarson og
Sigurður Arnason.
Sundknattleiksmót Reykjavíkur
Sundknattleiksmót Reykjavíkur fór fram í Sundhöllinni 28. nóv. — 7.
des. 5 lið tóku þátt í mótinu, 2 frá Armanni, 2 frá K.R. og 1 frá Ægi.
Einstakir leikir fóru þannig:
Félög A-Árm. A-K.R. Ægir B-Árm. B-K.R. Mörk Stig
1. A-lið Árm. X 10—1 2—2 9—1 11—0 32—4 7
2. A-lið K.R. . 1—10 X 4—1 1—0 9—1 15—12 6
3. Ægir .... .. 2—2 1—4 X 4—1 4—0 11—7 5
4. B-lið Arm. .. 1—9 0—1 1^1 X 2—1 4—15 2
5. B-liðK.R. .. 0—11 1—9 1 o 1—2 X 2—26 0
Úrslit mótsins urðu því þau, að Ármann vann með 7 stigum og hlaut
þar með „Sundknattleiksmanninn" og titilinn „Sundknattieiksmeistarar
Reykjavíkur 1945“. Hefur alls verið keppt 6 sinnum um þennan titil, K.R.
vann 1944, en Ármann öll hin skiptin. Reykjavíkurmeistarar Ármanns eru:
Ogmundur Guðmundsson, Magnús Kristjánsson, Stefán Jónsson, Gísli Jóns-
son, Guðm. Guðjónsson, Einar Hjartarson og Sigurður Árnason.
Sundmótin úti á landi 1945
Hér fer á eftir stutt skýrsla um þau sundmót og sundkeppnir, sem fram
hafa farið úti á landi 1945 og náðst hefur til. Vonandi sjá viðkomandi
aðilar um, að framvegis vanti ekkert sundmót í þennan kafla.
SUNDMÓT U.M.S. SKARPIIÉÐINS. Héraðssambandið Skarphéðinn
gekkst fyrir sundmóti að Laugaskarði í Hveragerði sunnudaginn 27. maí.
Var mótið helgað minningu Jónasar Hallgrímssonar, en jafnframt liður í
hinu árlega héraðsmóti. Forseti sambandsins, Sigurður Greipsson, íþrótta-
kennari í Haukadal, setti mótið með ræðu. Auk hans fluttu stuttar ræður
Lárus J. Rist sundkennari og Benedikt G. Waage, forseti I.S.I., en Sigfús
Elíasson flutti kvæði. Þátttakendur mótsins voru um 30. Fara úrslitin hér
á eftir: 50 m. jrjáls aSjerð karla: 1. Jón Teitsson, Umf. Laugdæla, 40,9 sek.
2. Steindór Sighvatsson, Umf. Samhyggð, 42,4 sek. 3. Magnús Kristjánsson,
99