Tölvuheimur - 01.08.2003, Síða 7
Merkja má töluverðan mun á áhugasvið-
um karla og kvenna þegar kemur að
tölvusnuðri ef marka má rannsókn sem
unnin var í Bretlandi fyrir öryggis- og
vírusvarnafyrirtækið Symantec. Rann-
sóknin leiddi í ljós að konur væru líklegri
til að snuðra í tölvupósti og skrifum
maka sinna heima fyrir en karlmenn
væru hnýsnari um trúnaðarmál á vinnu-
staðnum.
KONURNAR NJÓSNA FREKAR UM
KARLANA
40 prósent kvenna sögðust myndu skoða
tölvupóst maka sinna ef þær hefðu grun um að
þeir væru þeim ótrúir á meðan einungis 25 pró-
sent karlmanna sögðust myndu fara þá leið. Sömu
sögu var að segja um textaboð. 65 prósent kvenna
sögðust líklegar til að skoða textaboð á símum
karla sinna ef þær þekktu ekki númer sendandans,
en aðeins fjórðungur karla sagðist mundu hafa
þann háttinn á.
Karlarnir láta frekar undan forvitninni á vinnu-
staðnum, en 27 prósent þeirra myndu forvitnast um
laun samstarfsmanna sinna á tölvu yfirmannsins ef
tækifæri byðist, en einungis 13 prósent kvenna. Að
sama skapi mundi fjórðungur karla snuðra í
trúnaðarupplýsingum fyrirtækisins, en ein-
ungis 10 prósent kvenna.
„Fólk er forvitið að eðlisfari og það eru til
einstaklingar sem myndu lesa tölvupóst
annarra og meira til ef þeir gætu,“ segir
Kevin Chapman hjá Symantec. Í ljósi rann-
sóknarniðurstaðnanna hefur Symantec gef-
ið út eftirfarandi þumalputtareglur sem
hjálpa eiga fólki að passa upp á gögnin sín:
• Notið aðgangsorð á viðkvæm skjöl
• Látið farsímann kalla á PIN-númer
þegar kveikt er á honum
• Haldið aðgangsorðum leyndum og skiptið
um þau reglulega
• Ekki nota aðgangsorð sem auðvelt er að
giska á
• Notið skjáhvílu sem læst er með aðgangs-
orði.
KYNJAMUNUR Á TÖLVUSNUÐRI
– Konur njósna um karla og karlarnir um vinnuna
F Y R S T O G F R E M S T
www.heimur.is 7Ágúst Tölvuheimur 2003
!" !#$
%
&##'()!!"*+&##'()!,
-
"...
*
/
0
1
23
*
4
56
78
9/ 9 +% '" (
%9
Fyrirtækið NOP (www.nop.co.uk) vann rannsóknina fyrir
Symantec (www.symantec.com), en á heimasíðu Syman-
tec má finna gagnlegar upplýsingar um vírusa og aðra
óværu á Netinu.