Úrval - 01.06.1945, Blaðsíða 14
12
TJRVAL
þetta af bókum, fann ég ekkert
um það, og yfirleitt ekkert um
tilhugalíf fuglanna. Síðan eru
liðin 25 ár, og á þeim tíma hefi
ég eytt miklu af leyfum mín-
um í Bretlandi, Hollandi, Lou-
isiana og Spitsbergen við at-
huganír á þessum þætti. fugla-
lífsins, og koma niðurstöður
mínar í öllum aðalatriðum heim
við kenningu Darwins um
makaval (sexual selection) dýr-
anna, þó að henni kunni að vera
ábótavant í ýmsum smáatrið-
um.
Tiihugalíf þekkist vitanlega
ekki hjá lægstu dýrategundun-
um, Marglittanlæturegginblátt
áfram seytla út í sjóinn og verð-
ur síðan að treysta á guð og
gæfuna um frjóvgun. Það er
ekki fyrr en karldýrin og kven-
dýrin verða að vinna saman til
þess að frjóvgun megi takast,
að vænta má tilhugalífs, og
jafnvel þá þekkist það því að-
eins, að fyrir hendi sé allþrosk-
aður heili og taugakerfi.
Prumstæðustu tákn tilhuga-
lífs má ef til vill sjá hjá
sumum tegundum sæburstorma
(polychætes), sem á vissum
tímum árs og við tunglkomur
synda upp úr klettagjótum,
safnast í hópa þar sem karl-
ormarnir synda í kringum kven-
ormanna með skringilegum til-
burðum. Það er hugsanlegt, að
návist þessa dansandi karlorma
örvi kvendýrin til að verpa.
eggjum, sem karlormurinn síð-
an hellir frjóum sínum yfir. Hjá
sniglum má líka sjá frumstætt
tilhugalíf, sem verður flóknara
fyrir þá sök, að þeir eru tví-
kynja.
En það er ekki fyrr en hjá
kóngulónum og sumum krabba-
tegundum, að hægt er með vissu
að tala um tilhugalíf. Karldýr
hinna svonefndu fiðlukrabba
hefir til dæmis óhemjustóra
kló, sem stundum getur jafnvel
vegið meira en allur hinn hlutí
líkamans, og oft er mjög lit-
skrúðug. ALmennt var álitið, að
þessari kló beittu þeir í barátt-
unni við önnur karldýr eða til
þess að bera brúðurina á brott
með. Nákvæmar rannsóknir dr.
Pearce hafa hins vegar leitt í
ljós, að klóin er aðallega til að
sýnast. Þegar kvenkrabbi
skríður framhjá karlkrabba um
fengitímann, rís hann upp á
endann og heldur klónni hátt á
loft. Ef kvenkrabbinn gefur
því engan gaum, hleypur karl-
krabbinn þangað sem hún get-
ur séð hann aftur og leikur