Úrval - 01.06.1945, Blaðsíða 8
6
TjRVAL
tilraunastofu hefir þegar náðst
2400 metra hraði á sekúndu.
Án þess að vera of bjartsýnn
má gera ráð fyrir, að um það
bil sem póst- og farþegaflug
með rakettum er komið á hag-
nýtt stig, muni hraðinn verða
um 2400 metrar á sekúndu, og
bygging þeirra hafa náð svo
mikilli fullkomnun, að hlutfall-
ið milli burðarmagns, eigin
þunga og eldsneytis verði 1:2:6
—■ þ.e.a.s. hún getur borið tvö-
falt meira eldsneyti en saman-
lagt burðarmagn og eigin
þungi.
Níu smálesta raketta mundi
flytja 6 smálestir af eldsneyti
og eina smálest af flutningi.
Þegar eldsneytið er búið, vegur
hún 3 smálestir og þá er hraði
hennar mestur — um 2400
metrar á sekúndu — og hún
stödd einhversstaðar í efri há-
loftunum. Af þessu eldsneyti
getur hún flogið um 650 km. og
mun ferðin takaumsexoghálfa
mínútu. Vegna ýmiskonar út-
búnaðar í sambandi við far-
þegaflug er naumast hægt að
búast við, að hún geti flutt
fleiri en fjóra farþega ásamt
farangri þeirra og flugmanni.
Og hvað mundi slíkt flug kosta ?
Ef miðað er við núverandi verð
á eldsneyti í Bandaríkjumim,
mundi það eitt kosta 2000
krónur, eða 500 krónur fyrir
hvern farþega. Það er út í blá-
inn að áætla annan kostnað, s.s.
byggingarkostnað, hve margar
ferðir rakettan gæti farið dag-
lega viðhalds-, flugvalla-
tryggingar-, og annan kostnað,
sem jafnan fylgir stórrekstri í
samgöngum, en það er naumast
hægt að gera ráð fyrir minna
en 2000 krónum. Nú kostar
jafnlöng ferð í flugvél 170 krón-
ur og í járnbrautarlestlSOkrón-
ur, svo að það sýnist nokkuð
mikið að borga tífalt meira fyr-
ir tímasparnað, sem nemur í
mesta lagi tveim stundum. Ekki
er þó ástæða til að gera ráð fyr-
ir, að þessar tölur séu sama og
dauðadómur yfir öllu farþega-
flugi með rakettum. Níu smá-
lesta raketta er sennilega sú
minnsta, sem til greina kemur.
Átján smálesta raketta mundi
sennilega geta borið 9 farþega,
og 36 smálesta, raketta 20 far-
þega.
Á þeirri rakettuöld, sem nú
ríkir, verða auðvitað í notkun
margskonar loftknúnar flug-
vélar*, en hraði þeirra getur
*) Sjá „Skrúfulausa flugvélin“
■ í 3. hefti Orvals, III. árg.
j