Úrval - 01.10.1950, Qupperneq 57
LYKTEYÐANDI LYF NÁTTÚRUNNAR
55
Önnur kona, sem notað hafði
blaðgrænutöflur með góðum á-
rangri, sagði Westcott frá bróð-
ur sínum, sem þjáðist af lang-
vinnum lungnasjúkdómi, „bron-
chiectasis". Hann var ekki veik-
ari en svo, að hann gat stund-
að atvinnu sína, sölumennsku,
en óþefurinn sem barst frá vit-
um hans, háði honum mjög i
starfinu. Hann fékk blaðgrænu-
töflur og hvarf þá andremman,
þó að ekki læknuðu þær lungna-
sjúkdóminn.
Ég hef sjálfur sannprófað á-
hrifamátt blaðgrænunnar með
því að gefa hana hundinum mín-
um, sem var 170 punda stór-
dani, kominn allmjög til ára
sinna. Hann var mjög hændur
að okkur öllum og vinum okk-
ar. En hvernig stóð á því, að
enginn fékkst lengur til að gera
gælur við hann? Þessa spurn-
ingu mátti lesa úr undrandi
og særðu augnaráði hans. Á-
stæðan, sem hann gat auðvitað
ekki skilið, var sú, að það Iagði
óþolandi óþef frá vitum hans,
og fór hann dagversnandi. Það
dugðu engir smáskammtar
handa þessu stóra dýri. En með
sex taflna dagskammti var unnt
að halda burtu öllum óþef.
Blaðgrænan eyðir einnig tó-
baksþef og vínþef. Allir, sem
þjást af andremmu eða slæmri
svitalykt, ættu að leita til tann-
læknis eða læknis. Það er betra
að fá gert við skemmdar tenn-
ur og lagað röng efnaskipti,
ef það er hægt, heldur að dylja
hvorutveggja með blaðgrænu.
Blaðgrænutöflur eru nú orðið
seldar án lyfseðils í öllum lyf ja-
búðum Bandaríkjanna. Hundr-
uð lækna hafa notað þær með
ágætum árangri og án nokkurra
skaðlegra áhrifa. Milljónir
manna, sem ekki hafa getað
fengið bót þessara meina hjá
læknum eða tannlæknum, munu
í framtíðinni blessa þessa upp-
götvun dr. Westctts.
★ 'k
Spurningaþáttur.
1 spurningaþætti í amerísku útvarpi var þingkonan Margaret
Chase Smith, fulltrúi Maineríkis, spurð að því hvað hún mundi
gera, ef hún vaknaði einn góðan veðurdag við það að hún væri
komin í Hvitahúsið.
„Ég mundi fara rakleitt til frú Truman, biðja hana afsökunar
og hypja mig heim,“ sagði þingkonan. — Dancing Times.