Úrval - 01.10.1950, Blaðsíða 75
BRÉP TIL BARNANNA MINNA
73
til að gefa mér skýrslu, og hve
hreykin við vorum, þegar við
gátum lagt smáupphæð í bank-
ann, þrátt fyrir útgjöldin vegna
veikinda móður þinnar.
Ðan kom orðum að því fyr-
ir mig, þegar hann sagði: „Pabbi,
finnst þér ekki sneddí, að Kitty
skuli vera kvenmaður, eins og
mamma?“ „Gott, en ekki
sneddí,“ leiðréttir þú hann. Ann-
að sagðirðu ekki, en ég sá bregða
fyrir nýjum glampa í augum
þínum, og ég vissi, að á þeirri
stundu urðum við öll vinir, að
þá hvarf með öllu sú tilfinning
þin, að þú værir óvelkomin, því
að þér varð að lokum ljóst, hve
mjög við þörfnuðumst þín.
Samhygð og eindrægni sett-
ist þá að ríkjum, og nýr ylur
fyllti húsið. Þegar móðir ykkar
kom heim, tengdi hún okkur
saman traustum böndum ham-
ingju og tilgangs. Og eindrægn-
in kom meiru til leiðar: hún
sameinaði ykkur þrjú í eina
sterka heild, sem nærri lá einu
sinni að gerði uppreisn. Það var
út af skemmtiklúbbnum. Þið
sögðuð, að flestir jafnaldrar
ykkar væru í honum og vilduð
fá að ganga í hann líka. Auð-
heyrt var, að þið höfðuð rætt
xnálið ítarlega, því að sókn ykk-
ar var vel skipulögð. Kitty hafði
orð fyrir ykkur og taldi fram
öll hlunnindi, sem því fylgdu að
vera meðlimur, en um kostnað-
inn gat hún ekki.
Þið voruð eyðilögð, þegar ég
sagði ykkur, að við hefðum ekki
efni á því. Þið vilduð ekki við-
urkenna, að viðgerð á húsinu
yrði að ganga fyrir, og ég held
þið hafið verið dálítið óánægð
með mig, af því að ég var ó-
breyttur bankamaður en ekki
bankaeigandi. Það hefði lítið
stoðað þá að segja ykkur, að
enn þýðingarmeira fyrir mig en
viðgerð hússins væri að geta
kostað ykkur til háskólanáms.
Ef við hefðum vitað þá, að
aðeins Kitty mundi fara í há-
skóla, hefði ég ef til vill leyft
ykkur að ganga í skemmti-
klúbbinn. Við gátum ekki vitað,
að stríðið mundi koma. En það
kom, og á seytjánda afmælis-
daginn þinn, Leslie, komstu með
eyðublað til skráningar í flot-
ann. Hvað gat ég sagt ? Þú vild-
ir þetta, því að þú taldir það
skyldu þína að verja land þitt.
Ég hafði engin rök gegn því.
Ég minntist fyrsta glóðaraug-
ans, sem þú fékkst, þegar þú
gekkst á milli í áflogunum, og
ég skildi þig betur en áður. Ég