Læknablaðið : fylgirit - 21.11.2014, Blaðsíða 3
LÆKNAblaðið/Fylgirit 81 2014/100 5
Stjórn Félags íslenskra lyflækna
Runólfur Pálsson, formaður
Davíð O. Arnar, ritari
Sigurður Ólafsson, gjaldkeri
Rafn Benediktsson,
formaður vísindanefndar
Hlíf Steingrímsdóttir
Sigurður Guðmundsson
Vísinda- og dómnefnd
Rafn Benediktsson, formaður
Gerður Gröndal
Hrönn Harðardóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Sigurður Yngvi Kristinsson
Sýning lyfjafyrirtækja
Actavis
Genzyme
GlaxoSmithKline
Icepharma
Bayer
Eli Lilly
Norpharma
Pfizer
Roche
Lyfis
Vistor
AstraZeneca
Astellas
Boehringer Ingelheim
Janssen
MSD
Novartis
Novo Nordisk
Takeda
Kæru lyflæknar og aðrir þinggestir
Það er mér sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin á XXI. vísindaþing
Félags íslenskra lyflækna sem á ný er haldið í ráðstefnu- og tónlistar-
húsinu Hörpu í Reykjavík.
Þing Félags íslenskra lyflækna hafa um árabil verið mikilvægur vett-
vangur fyrir kynningu á niðurstöðum vísindarannsókna og umfjöllun
um nýjungar og áleitin viðfangsefni innan lyflækninga. Fyrrnefndi
þátturinn hefur verið sérlega þýðingarmikill og hafa margir af okkar
fremstu vísindamönnum í læknisfræði þreytt frumraun sína á þingum
félagsins. Að þessu sinni hafa 70 innsend ágrip verið valin til kynn-
ingar og er það svipaður fjöldi og á undanförnum þingum. Það verður
að teljast ánægjulegt í ljósi erfiðleika er steðja að háskólasjúkrahúsinu
okkar sem verið hefur höfuðvígi vísindarannsókna á sviði lyflækninga.
Höfundar munu kynna rannsóknir sínar með veggspjaldi og munu jafn-
framt gera grein fyrir helstu niðurstöðum í stuttu máli. Að vanda verða
veitt verðlaun fyrir besta ágrip ungs læknis og læknanema. Dagskrá
þingsins er annars fjölbreytt og ætti að höfða til flestra lækna og annarra
heilbrigðisstarfsmanna sem fást við verkefni lyflækninga í starfi sínu.
Meðal þess sem ber hæst er málþing þar sem fjallað verður um þær
veigamiklu breytingar sem orðið hafa á skipulagi og þjónustu lyflækn-
inga á sjúkrahúsum á Vesturlöndum undanfarin ár og rekja má til ört
stækkandi hóps aldraðra, framfara í læknisfræði og upplýsingatækni,
og kröfu um aukna skilvirkni og hagkvæmni til að mæta vaxandi kostn-
aði. Einnig er vert að geta kynningar á ómskoðun við rúmstokkinn sem
hefur verið að ryðja sér til rúms á síðustu árum. Þá verður umfjöllun um
nýjungar og nýjar áherslur í lyflæknisfræði, meðal annars framþróun í
lyfjameðferð sem stundum hefur takmarkaðan ávinning en oft aukinn
kostnað í för með sér. Loks verður staða fyrirbyggjandi meðferðar við
langvinnum kvillum krufin til mergjar en margir hafa kallað eftir meiri
áherslu á slík úrræði á undanförnum árum. Kastljósinu verður beint að
framförum í erfðafræði sem gefa kost á snemmkominni greiningu og
meðferð ýmissa sjúkdóma.
Líkt og á síðasta þingi Félags íslenskra lyflækna árið 2012 verða
sérstök málþing um viðfangsefni hjúkrunar á sviði lyflækninga. Er
þetta liður í að gera þingið áhugaverðara fyrir hjúkrunarfræðinga og
aðrar fagstéttir. Segja má að þetta sé löngu tímabært skref því þróun
heilbrigðisþjónustunnar hefur leitt til þess að hlutur annarra fagstétta en
lækna hefur aukist jafnt og þétt og vaxandi áhersla er nú lögð á þverfag-
legt teymisstarf í meðferð sjúklinga.
Margir hafa lagt hönd á plóg við undirbúning þessa þings og færi ég
þeim öllum bestu þakkir fyrir. Að síðustu vil ég þakka stuðningsaðilum
þingsins fyrir þeirra mikilvæga framlag.
Runólfur Pálsson,
læknir
Formaður Félags
íslenskra lyflækna
Umsjón með undirbúningi
og framkvæmd
www.athygliradstefnur.is
thorunn@athygliradstefnur.is
tobba@athygliradstefnur.is
Velkomin!