Læknablaðið : fylgirit - 26.04.2016, Síða 3
LÆKNAblaðið 2016/102 FYLGIRIT 88 3
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104 – 564 4106
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Ábyrgð efnis
Vísindanefnd þingsins
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Forsíðumynd Þorkell Þorkelsson,
ljósmyndari Landspítala
Upplag 150
Prentun: Prenttækni ehf.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation In-
dex (SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition og Scopus.
The scientific contents of the Icelan-
dic Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0254-1394
Magnús Gottfreðsson
læknir, sérfræðingur í
lyflækningum og smitsjúkdómum,
yfirlæknir á Landspítala
prófessor við læknadeild HÍ
Vísindi og saltfiskur
Í bók Halldórs Laxness, Sölku Völku, leggur aðalsöguhetjan út af hinni velþekktu íslensku staðhæfingu
um að lífið sé saltfiskur með eftirfarandi spurningu:
„... þegar öllu er á botninn hvolft þá er lífið þó umfram alt saltfiskur en ekki draumaríngl?”
Stefna og starfsáætlun Landspítala hefur nú nýlega verið endurskoðuð. Þar er hnykkt á þríþættu hlut-
verki spítalans, að sinna þjónustuhlutverki við sjúklinga og aðstandendur þeirra, menntun og vísindum.
Þegar best lætur eru þessir þættir algerlega samofnir starfsemi spítalans. En ef til vill eru menntun og
vísindi dæmi um það sem Salka Valka hefði flokkað sem draumaríngl, ekki síst þegar harðnar á daln-
um. Það er vissulega hollt að borða íslenskan saltfisk en einnig er mikilvægt að láta sig dreyma af og til.
Jafnvel fyrir þá sem eru hápraktískir og lítt gefnir fyrir draumaríngl er það staðreynd að menntun og
öflugt vísindastarf eru mikilvægar undirstöður gæða og grósku á háskólasjúkrahúsi. Þetta gildir jafnt
um öryggi sjúklinga, innleiðingu nýjunga og nýliðun starfsfólks. Á þetta er lögð áhersla í vísindastefnu
Landspítala, en þar eru sett fram hófstillt töluleg markmið um skiptingu fjár til vísindastarfsemi sem hlut-
fall af rekstrarfé. Þar er einnig gert ráð fyrir að hvatar séu til staðar fyrir rannsakendur og stjórnendur til
að sinna rannsóknum og ná árangri á sviði vísinda. Segja má að með markmiðunum um að efla menntun
og vísindi sé lögð áhersla á mikilvægi þess að láta sig dreyma og vísa þannig veginn til framtíðar. Enn
vantar því miður mikið upp á að spítalinn sé nálægt settu marki í þessu efni. Skyldi engan undra eftir
stöðuga vanfjármögnun Landspítala undanfarin ár, þar sem bráðnauðsynlegt viðhald á húsakosti og
brýnustu tækjakaup hafa setið á hakanum. Við þurfum að halda staðreyndum til haga hvað varðar þenn-
an þátt starfseminnar, sérstaklega þegar okkur er tilkynnt að ,,blússandi góðæri” sé hafið. Nýleg athugun
á fjölda fræðilegra greina sem merktar eru Landspítala og skráðar í Scopus-gagnagrunninum bendir til
að birtingum fari áfram fækkandi. Þegar gögnin eru rýnd kemur í ljós að spítalinn er góður samstarfsaðili
í margvíslegum rannsóknum og er það vel. Til lengri tíma litið er þó mikilvægt að vísindamenn sem hér
starfa séu oftar í leiðandi hlutverki, ekki síst á sviði klínískra rannsókna. Ávinningurinn er aukin þekking
og reynsla sem eflir starfsemina til framtíðar.
Gott dæmi um verkefni þar sem vísindi, kennsla og klínísk þjónusta er samþætt er nýlegur samningur
heilbrigðisvísindabókasafns um bættan aðgang að gagnasafni UpToDate sem nú er aðgengilegt öllum
starfsmönnum hvar sem er og hvenær sem er gegnum snjallsíma eða spjaldtölvur. Með þessu er stuðlað
að bættri ákvarðanatöku í klínískum störfum, en einnig er gagnasafnið í raun ígildi fjölmargra kennslu-
bóka í sífelldri endurskoðun og nýtist því afar vel við kennslu.
Undanfarinn áratug eða svo hafa gríðarlegar framfarir átt sér stað í lyfjaþróun gegn mörgum langvinn-
um sjúkdómum, meðal annars krabbameinum, sjálfsofnæmissjúkdómum og lifrarbólgu C. Hin nýju lyf
hafa nánast undantekningarlaust verið afar dýr, - svo mjög að dráttur hefur stundum orðið á notkun
þeirra hérlendis. Það voru því ánægjuleg tíðindi þegar meðferðarátaki gegn lifrarbólgu C var hleypt af
stokkunum nú í ársbyrjun, en stefnt er að því að lækna sem allra flesta Íslendinga sem sýktir eru af lifrar-
bólgu C veirunni á næstu þremur árum og nota til þess nýstárlega nálgun á viðfangsefninu. Markmiðið
er að beita víðtækri lyfjameðferð á landsvísu og vonast til að hún skili sér í lækkun á tíðni sjúkdómsins
líkt og gerist við bólusetningar. Hér er því um lýðheilsuátak að ræða en jafnhliða verður árangurinn
rannsakaður. Átakið er samvinnuverkefni Landspítala, Sjúkrahússins Vogs og Embættis landlæknis. Það
sætir tíðindum að hin nýju lyf fást án endurgjalds frá framleiðanda. Skipulag átaksins hefur kallað á mikla
samvinnu og teymisvinnu fagfólks og hefur hún undantekningarlaust gengið afar vel. Sú staðreynd að
þetta verkefni er nú að verða að veruleika eftir skamman undirbúningstíma minnir okkur á hversu mikl-
um mannauði heilbrigðisþjónustan hér á landi og þá ekki síst háskólasjúkrahúsið okkar, Landspítalinn,
býr yfir. Miklar væntingar eru um góðan árangur og grannt er fylgst með meðferðarátakinu erlendis.
Þetta sýnir okkur að jafnvel fámenn en stöndug þjóð eins og Íslendingar getur lagt mikið af mörkum við
sköpun nýrrar þekkingar í heilbrigðisvísindum. Slík iðja getur skapað margs konar verðmæti, ekki síður
en saltfiskverkun fyrri tíma. Nú er lag að hinni mörkuðu stefnu spítalans og vísindaráðs verði fylgt eftir
og verkin látin tala.